Búnaðarrit - 01.01.1915, Blaðsíða 44
38
BÚNAÐARRIT
Tafla sú, er hór fer á eftir, sýnir verð fóðureininga
nokkurra tegunda. í því verði er innifalið flutnings-
gjald frá Leith til íslands.
Verðið er miðað við enskt tonn1), og stærð fóður-
eininganna er eftir enskum mælikvarða. En munur verðs-
ins á fóðureiningunum er í réttum hlutföllum fyrir því.
Eg veit að menn munu ekki alment vita eða skilja,
hvað átt er við með fóðureiningu. í Noregi er því
þannig varið, að 1 kíló af beztu töðu er talið innihalda
eina fóðureiningu. Jafnmikið fóðurgildi annara tegunda
er svo talin fóðureining. Af sumu fóðri þarf mörg kíló
til að gera fóðureiningu, en af sumu fóðri minna en kíló.
Fóðureiningar hverrar tegundar eru svo ögn misjafnlega
margar; það fer eftir staðarháttum, þar sem jurtin grær,
eftir þroskastigi hennar við uppskeru og eftir geymslu.
Aðferðin til að finna, hversu margar fóðureiningar eru í
hverri tegund, er sem hór segir:
Fóðurefnunum er skift í 3 aðalflokka: eggjahvituefni,
feiti og kolvetni. Tveir fyrnefndu flokkarnir hafa 2%
sinnum meira gildi til næringar heldur en sá siðast-
taldi. Þegar svo búið er að finna, hve mörg prósent
fóðurefnið inniheldur af hverjum flokki næringarefnanna,
er prósenttala eggjahvítuefnanna og feitinnar margfölduð
með 2Vs og summan lögð við prósenttölu kolvetnanna.
Tökum til dæmis hafra, sem í eru 9°/o eggjahvítu-
efni, 5lA°/o feiti og 45% kolvetni (alt meltanlegt).
Verður reikningurinn þannig: (9-j-5V4)x 2Vs-|-45=80B/8
fóðureiningar. Þetta er reiknað eftir enskum mælikvarða.
í 100 ensku pundunum af höfrunum eru þvi 80% fóður-
einingar. í 100 pundunum ensku eru um 90 pund dönsk.
Væri nú hvert enskt pund stækkað svo, að það næði
dönsku punki, yxi hver fóðureining urn leið, og þær yrðu
jafnmargar og áður. En þá stærri og dýrari.
1) í ensku tonni eru 2240 pund eusk eða urn 1016 kíló.