Búnaðarrit - 01.01.1915, Side 48
42
BÚNAÐARRIT
Bretland. Þegar skepnur hafa svona salt, er þeim alls
ekki hætt við að éta ofmikið af því. Þetta salt mun
vera um ódýrara en vanalegt matarsalt. Það fæst
einnig hjá þessari verziun, en bezt væri að fá það i
stórkaupum frá Miðjarðarhafslöndunum, þvi að þaðan er
það fengið.
Aftasta dálkinn í töflunni set eg til þess, að menn
geti glöggvað sig á, hve mikið af þyngd hverrar vöru-
tegundar er meltanlegt. Það sparar peninga, að kaupa
ekki né flytja þá vöru, er iítið er í af meltanlegum
þunga, með því lika, að þannig lagað fóður verður skepn-
unum oftast erflðara að melta, og fyrir það ekki eins
notadrjúgt til fóðurs, sem næringar-efnamagn þess bendir
til, samanborið við fóður, er hefir meira af meltanlegum
þunga.
Miklu eyða menn til ónýtis, þegar keypt er hey,
bæði af því innflutningsgjaidið er svo dýrt, og svo af
því, að 44 og 45°/o af þyngd þess er ómeltanlegt.
Fóðureiningarnar í töflunni hafa allar jafnmikið
fóðurgildi, eins og við vitum. En vegna verðsins er alls
ekki sama, hver af tegundunum er keypt. Tökum til
dæmis Brewery á 5.59 aura fóðureiningin og dýrari hey-
tegundina á 9.10 aura. Yerðmunur hverrar fóðureiningar
er þar 3.42 aurar.
Nú hygg eg, að ekki sé langt frá lagi að telja
mjólkandi kýr á vetrarfóðri í bæjum og sjóþorpum kring-
um alt land um 1500. Eg geri ráð fyrir því, að
gjafatíminn sé 8 mánuðir eða 240 dagar, og að meðal-
gjöf kýrinnar sé 14 fóðureiningar (enskar). Sé nú gert
ráð fyrir, að hverri kú sé gefnar 3 fóðureiningar á dag
af útlendu fóðri — oft er þessum kúm gefið fleira inn-
lent fóður en hey — verður þá útlenda fóðrið 1500
X 3 X 240=1080000 fóðureiningar.
Næst skal svo athuga, hversu miklu dýrara útlenda
heyið yrði en 2?rett'en/-fóðrið. 1080000X3,42 aura er
37936 kr. Það er með öðrum orðum: væri nú ekki