Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.01.1915, Page 49

Búnaðarrit - 01.01.1915, Page 49
BÚNAÐARRIT 43 völ annara fóðurteRunda til innflutnings en þessara, þá yrðu sparaðar 37936 kr. með því, að kaupa Brewery handa kúnum, en ekki heyið. Þá geta menn líka borið saman rúginn, hafrana og Brewery o. s. frv. Auk þessa er árlega keypt töluvert útlent fóður handa hestum og kindum við sjóinn. í harðærum kaupa bændur til sveita mestu íirn af útlendu fóðri, sem oftast er dýr matvara. Tökum lítið •dæmi. Eitt harða vorið kaupir bóndi nokkur 500 kíló af rúgmjöli handa skepnum sínum. Nú er hver fóður- eining í því 2 aurum dýrari en í Brewery. I þessum 500 kílóum mjölsins kaupir bóndinn 900 fóðureiningar. En með því, að kaupa jafnmargar fóðureiningar í Bre- wéry-tóbn, hefði hann sparað sér 18 krónur. Hey eigum við alls ekki að ílytja inn, heldur að eins kraftfóður, sem er ódýrast og skepnunum hentara með beyjunum hér eða með beit. Af súrheyi eigum við og að hafa nægilegt handa mylkum kúm og öðrum skepn- um, svo að við séum ekki að flytja inn dýrt fóður, er komi í þess stað, eins og t. d. il/oZasses-fóðrið. Oft getur það verið skynsamlegt fyrir bændur í sveit og sjálfsagt, að kaupa kraftfóður, til að gefa með heyjum, þegar þau eru mjög hrakin og illa verkuð, og ekki fullnægjandi til viðhalds fénaði, og eins þegar hey- fengur verður óvanalega rýr. Eg er viss um, að hefðu bændur, er áttu slæmu heyin 1913, fargað fáeinum kindum fyrir kraftfóður handa fénaði sínum, til að gefa með heyjum og beit, og svo gætt alls vel, mundi vel hafa farið. Vörurnar, sem hér er talað um, fást einnig hjá Andrési Guðmundssyni, 2 Commercial Street, Leith, o. v. Enginn má skilja þessar línur þannig, að eg sé að hvetja menn til kaupa á útlendu fóðri, heldur vildi eg benda mönnum á, hvað bezt væri að kaupa.

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.