Búnaðarrit - 01.01.1915, Qupperneq 50
44
BÚNAÐARRIT
Eftir sem áður eigum við að nota sem bezt og til
þurðar innlendan fóðurbœti.
Kynblondun sauðíjár tll slátrunar.
Eins og kunnugt er, hafa skozkir bændur margt
sauðfé. Hús hafa þeir ekki nema fyrir kynbótahrúta og
sumt af fó þvi, er þeir fara með á sýningar. Fjöldinn
af fénu þar er því beitarfé. Aðalkynin eru þar tvö:
svarthöfðafé (Black Faced) og Chevíot. Þessi kyn eru
ekki ósvipuð okkar fjárkyni á stærð.
Bændurnir, sem búa í hálendi Skotlands, haga fjár-
rækt sinni mestmegnis þannig: Beir hafa ær af svart-
höfðakyni eða Cheviotkyni; hafa svo nokkuð af samkyns
hrútum, til að halda við hreinum stofnunum. En auk
þess hafa þeir hrúta af svo nefndu Border Leicester-
kyni, sem er enskt stórt holdafjárkyn og mjög bráð-
þroska. Með þessari blöndun fá þeir stór og bráðþroska
lömb, sem þeir seija öll tii slátrunar.
í Hjaltlandi er svipuð aðferð höfð við fjárræktina.
Þar eru fjárkynin aðallega hjaltlenzka féð — samkyns fé
og á íslandi, en töluvert minna — og svo svarthöfðafé.
Næst skal eg með nokkrum dæmum gefa lesendum
minum hugmynd um, hvern arð bændurnir þarna hafa
af þessari kynblöndun. Dæmin hefi eg tekið hjá skozkum og
hjaltlenzkum bændum, sem eg hefi heimsótt og dvalið bjá.
Meðal þeirra er W. J. Gordon á Windhouse í ey->
junni Mid Yell á Hjaltlandi. Hann hafði kynblendinga
undan svarthöfðaám og Leicester-hrútum. Hann kvaðst
árlega fá 10—11 kr. meira fyrir kynblendingana heldur
en hreinkynja svarthöfða lömbin, þegar hann seldi hvort-
tveggja til slátrunar. Haustið 1913 seldi hann lömb sín
í Aberdeen, sem hér segir:
Grásnoppunga1) 4^/a mánaða á . . kr. 18,03
svarthöfðalömb 4Ú2 mánaða á . . ■—• 6,37
1) „Grey faced“. Þannig nefna Skotar kynblondinga undan
avarthöfðaám og Leicester-lirútum.