Búnaðarrit - 01.01.1915, Qupperneq 54
48
BÚNAÐARRIT
að dilkar með þeirri þyngd gefi 45% kjöt og mör, verður
það til samans 15% kíló af hverju lambi.
Eg geri ráð fyrir, að kynblendingarnir mundu gefa
50% kjöt og mör. Gerum nú ráð fyrir því minsta, og
að þyngdarmunur kynblendingslambanna og hinna á
fæti yrði að eins 5 kíló. Þá gerir lamb, sem vegur
40 kíló og gefur 50°/o kjöt og mör, alls 20 kíló kjöt og
mör, eða 4% kíló meira en dilkurinn hreinkynja, er vó
35 kiló. Eg geri ráð fyrir, að af þessum kjöts og mörs
auka yrðu 38/.i kíló kjöt, en % mör. Með sama verði
á þessu, og gengið er út frá hér að framan, fengist.þá
kr. 2,45 meira fyrir kjötið og mörinn. Nú hygg eg, að
það só það minsta, að gera ráð fyrir gærunni 1 kílói
þyngri, sem verða 80 aurar. Alls er þá munurinn
kr. 3,25.
Eg þykist ekki gera mér of háar vonir um muninn
á lömbunum, þótt eg geri ráð fyrir 3 kr. tii jafnaðar
um iandið.
í Búnaðarskýrslu hagstofunnar 1912 eru ær taldar
um landið 320871 með lömbum, en 58364 geldar. í
síðari tölunni eru vitanlega margar síðbærur. Alls eru
ærnar 379235. Eg geri ráð fyrir, að 8% af þeim séu
geldar, sem er vel í lagt; að þeim frádregnum verða eftir
348896. Nú geri eg ráð fyrir jafnmörgum lömbum að
hausti, og að 60°/o af þeim væru kynblendingar. Yrðu
þeir þá samtals 209337. Tekjurnar af kynblönduninni
yrðu þá 209337X3=628011 kr. Það eru um 100 kr.
á hvern sveitabónda í landinu.
Ef nú eru einhverjir, er vilja færa muninn ofan í
2 kr. á lambi, fá þeir þó ekki minna út, með þessari
dilkatölu, en samtals 418674 kr.
Nú segja sumir, að eg geri dilkana of marga, þar eð
sumir haíi fráfærur og sauði. En þess skal gæta, að
ærnar eru fleiri í landinu heldur en taldar eru í skýrsl-
unni, og svo er ekkert því til fyrirstöðu, að bændur, sem
færa frá, hafi einnig þessa kynblöndun. Margir þeir