Búnaðarrit - 01.01.1915, Page 63
BÚNAÐARRIT
57
hér um, getur hæglega borist hingað með heyi. Orma-
eggin berast með saurindum kindanna út á jörðina og
í grasið. Þau geta geymst árum saman, bæði í heyi og
á annan hátt, og orðið að ormum, ef þau berast á vota
jörð, þar sem snigillinn er til.
líaðlyt'.
Það er mikils virði, að baðlyfin séu góð. Góð bað-
lyf eru þau, sem drepa vel alla lús og kláða og hafa
heilnæmar verkanir á ullina og skinnið.
Það er margsannað, að baðlyf, sem þó drepa vel,
geta skemt ullina, einkum þó illa gerð kreólínböð eða
karbólböð ; það stafar af óhreinsaðri karbólsýru eða kreó-
líni, sem notað er í þessi böð. Skemdin á ullinni felst
í því, að hún missir göðan blœ, mýlct, teygju, fjaður-
magn, styrkleiJca og eiginleika til að taka vel litum.
Fyrir þetta og fleira, er getur verið að baðlyfjum,
hafa landsstjórnir eftirlit með baðlyfjunum. í Bretlandi
eru lög, sem fyrirskipa árlega tvennar baðanir á öllu
sauðfé. Um leið og bændur gefa vottorð um baðanirnar,
verða þeir að skýra frá, hvaða baðlyf þeir noti. Ef þá
kemur eitthvert nýtt baðlyf til sögunnar, eða eitthvað
virðist grunsamlegt við böðin, sem notuð eru, lætur
landbúnaðarráðuneytið rannsaka þau. Reynist þá bað-
lyfin eitthvað ónóg eða skaðvæn, eru menn varaðir
við þeim.
Þegar eg var í Skotlandi í sumar, spurðist eg fyrir
uin hjá stjórnarnefnd landbúnaðarráðuneytisins þar,
hvaða baðlyf væri bezt fyrir okkur að kaupa frá Eng-
landi. Eg fékk það svar, að bezt mundi að kaupa
Mc Dougalls baðlyf og svo Coopers. Og til viðbótar fékk
eg að vita það þar, að þau baðlyf eru mest notuð í
Bretlandi.
Þeir sem gáfu mér þessar upplýsingar, og leyfðu
mér að nefna nöfn sín með þeim, voru W. Barber, sem