Búnaðarrit

Årgang

Búnaðarrit - 01.01.1915, Side 64

Búnaðarrit - 01.01.1915, Side 64
58 BÚNAÐARRIT eg hefi nefnt hér áður, og J. Wood, aðal-eftirlitsmaður í nefndinni. Á landssýningunni, sem eg hefi getið um hér að framan, bar mest á þéssum baðlyfjum. Að eins tvö firmu önnur sýndu þar þá vöru. J Hjaltlandi nota menn aðallega Mc Dougalls bað- lyf, og Skotar telja þau ágæt haustböð og vetrarböð, segja að þau drepi vel, og fitumikil eru þau. Það sem eg veit um reynsiu á þessum baðlyfjum hér á landi, þá er hún góð. Eg þori því hyklaust að ráða mönnum til að nota þessi baðlyf. Stjórnarráðið hefir auglýst tvær tegundir af þeim. Þriðja tegundin stóð henni til boða, #Cake“, sem var mikið ódýrari en hinar, eða um 4 aura í kindina. Þetta bað er í smákökum, og eins vandað og hin baðlyfin frá þessu firma. Þessari tegund hafnaði stjórnin, og veit eg eigi hvað valdið hefir. En það væri rétt að leyfa notkun þeirrar tegundar líka. Um Coopers-baðlyfin hefi eg ritað áður, og þarf engu við það að bæta. En þeim, sem ekki líkar við þau, vil eg ráðleggja að kaupa Mc Dougalls baðlyf. Tynedale-baðið hans Sigurgeirs Einarssonar er miklð minna útbreitt á Bretlandi heldur en þau, sem eg hefi nefnt., og ekki var það til sýnis á landssýningunni. Má vera að það sé allgot.t bað fyrir því. Ekki veit eg hvernig það reynist hér á iandi. Baðlyfið, sem búið er til í Reykjavík, er merkilegt að því leyti. að það er fyrsta heimatilbúið bað, sem hér er á boðstólum. Það er alveg óreynt, og því ekkert hægt um það að segja. Þessu máli er þannig varið hér hjá okkur, að þótt kunnugt sé um efnasamsetningu baðlyfjanna, verður ekki af henni einni til fulls úr því skorið, hver áhrif þau hafa á hörundið og ullina. Það sem því þarf að gera er að leita greinilegra upplýsinga um innfluttu baðlyfin, þaðan sem þau eru

x

Búnaðarrit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.