Búnaðarrit - 01.01.1915, Qupperneq 66
60
BÚNAÐARRIT
það nauðsynlegra að greina hesfcakynin, því að reið-
hestar og dráttarhestar þurfa að hafa ólíkt skapnaðarlag.
Viljugir klárhestar eru beztir til útflutnings. En
vekurðargangur er svo skemfcilegur og þægilegur og tölu-
vert einkennilegur fyrir okkar hesta, og því er sjálfsagt,
að halda honum við hjá reiðhestum hér á landi. Hjá
sumum útlendingum eru vakrir hestar mikils metnir,
og gætu orðið það meira, væru hestarnir rétt kyntir.
Það er sama hestakyn á Hjaltlandi og hér að upp-
runa, en þar eru þeir mikið minni, að eins 32—42 þml.
á hæð. Hjaltlenzku bændurnir selja töluvert af þessum
hestum, bæði beint til Ameriku og svo í kolanámur í
Bretlandi. í Ameríku eru hestar þessir notaðir til
skemtunar, bæði fyrir litlum vögnum og til reiðar handa
börnum og unglingum.
í Hjaltlandi er hestaræktarfélag, er heldur ættar-
tölubók. Ættartala hvers tryppis er látin fylgja því,
þegar það er selt, ef hún er til. Þetta eykur verð hest-
anna, því að ættartalan bendir tíl þess, að vandað sé
valið og kynið óblandáð.
W. J. Gordon, hjaltlenzki bóndinn, sem eg hefi getið
um hér áður, sagði mér, að bændurnir í Hjaltland
fengju til jafnaðar fyrir hrossin sem hér segir:
1 v. tryppi .... 90 krónur
2 — — .... 180 -—
3 — — . . 252—270 —
Hestarnir, sem við flytjum út eru — fullvaxnir —
um 50 þml. á hæð. Ekki eru þeir óálitlegri til
vinnu við kolanámur — sem eg óska þeim ekki — og
svo geta þeir verið ágætir skemtihestar. Og til marg-
víslegra smávika, t. d. að aka mjólk til borga og bæja,
eru þeir notaðir utanlands, og fá alstaðar orð fyrir að
vera sérlega duglegir og fóðurléttir.
Nú sem stendur eru hestar hér í hærra verði en
vanalega, vegna stríðsins. Áður en það hófst, var verðið
um 80 kr. til jafnaðar. Arið 1909 voru fluttir út héðan