Búnaðarrit - 01.01.1915, Page 73
BÚNAÐARRIT
67
eg hefi séð, er þetta áreiðanlega sú, sem er langörugg-
asta vörnin gegn rykinu. Oftast full vörn.
Eg hefi enn ekki mikla reynslu hvorki í þessu né
öðru, en það sem reynsla mín í þessu efni nær, þá
virðist hún eindregið benda á, að heygríman eigi mikla
íramtið fyrir sér meðal íslenzkra bænda. Á hún að ryðja
sér til rúms og komast inn á hvert einasta heimili.
Heygrímur þessar hefi eg hingað til selt á 5 krónur
hverja, en þess skal getið, að eg heíi að eins keypt fáar
í einu og enn ekki getað rannsakað, hve miklu ódýrari
þær kunna að verða, ef mikið er keypt af þeim.; ;Ef
þær nú endast 2—5 ár, eins og reynslan virðist benda
á, þá er það lítt tilfinnanlegur kostnaður fyrir hvern
sem vera skal, 1—2V2 króna á ári. Ef eg útvegaði
mönnum mikið af þessum heygrímum, þá mundi eg
einnig gera mitt til að fá þær gerðar endingarbetri,
eftir því sem reynslan benti til.
Heilsan er öllum dýrmæt, og þá ekki sízt fátækum
fjölskyldubæudum, sem eru einyrkjar og verða eingöngu
að treysta á afl sitt og heilsu. Er því svona lítill skattur
fljótur að verða gróðafyrirtæki, ef hann verndar heilsuna.
Þó eg hér að framan hafi eingöngu talað um fjár-
hirðana, þá eru margir fleiri, sem geta haft stórgagn
af áhaldi þessu, t. d. kvenfólk, sem mikið er í reyk og
ryki. Þær hafa margar orðið brjóstveikar á slíku. Fleira
má nefna, en af því þessum línum er sérstaklega beint
til bænda, þá læt eg þetta nægja.
Það getur vel verið, að fleiri en eg hafi þegar orðið
til þess að útvega mönnum áhald þetta, og er það ekki
ætlun mín að draga mér neitt frægðarorð fyrir þessar
tilraunir mínar; sízt þá hafa það af öðrum. En af því
að eg hefi aldrei séð neitt um þetta ritað, þá vildi eg
vekja athygli bænda á reynslu minni í þessu efni.
Ekki má þó gleymast að nefna það, að Steingrímur
læknir Matthíasson bendir mönnum einmitt á, í hinni nýút-
komnu, ágætu heilsufræði sinni, að nota ryksíur í heyjum.
6*