Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.01.1915, Page 78

Búnaðarrit - 01.01.1915, Page 78
72 BÚNAÐARRIT mun hafa verið albúið í haust, og verður því búið í því í vetur. Eftir er nú að vita, hversu þetta reynist. Eg hefði kosið, að tróðlagið hefði verið þykkara, jafnvel 10 þuml., til þess að tryggja húsið sem bezt gegn kuldan- um, en eg vona þó að veggirnir reynist nægilega hlýir, og að ekki beri á raka, jafnvel þó hættast sé við slíku fyrsta árið. Ef þeir reynast vel, tel eg að mjög mikil- væg þekking sé fengin í húsagerð vorri. Ef þetta reyn- ist á annan veg, án þess að gluggum eða öðru slíku só um að kenna, þá vitum vér að 5 þuml. tróðhol er of þunt. Yér verðum þá að færa oss upp á skaftið og gera tróðið ef til vill 10 þuml. þykt. Ef tróðið er hæfilega þykt, liljöta veggirnir að verða hlýir og húsið rakalaust. Hve þykt tróðið þarf að vera, verðum vór að læra af reynslunni, og vér þurfum að læra það sem allra fyrst. Að vori getur bóndinn á Fremsta Gili frætt oss um það, hvað 5 þumlungar duga. Það tala nú allir um stjórnarskrána, ráðherrann og kónginn. Alla fýsir að vita, hvað um stjórnarskrána verður, hvort hún fæst í þetta sinn eða ekki. Það er sjálfsagt til skammar fyrir þingmann að segja það, en það er þó svo, að mér leikur miklu meiri forvitni á að vita: Hvernig reynist húsiö á Fremsta Gili? í nóv. 1914. Guðmundur Hannesson.

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.