Búnaðarrit - 01.01.1939, Blaðsíða 279
B Ú N A Ð A H R I T
275
um alltnf fóðrað það vel og sérstaklcga að vorinu,
því með þvi eina móti fáum við vissan og góðan arð
cftir það.“ Undir þetta get ég tekið með honum.
Heilsufar fjárins hei'ir batnað sérstaklega eftir 1934,
og er nokkuð jafnt síðan, enda þá notað ormalyf.
Ar Lainbatala Meðalfall
1934 .................... 2853 12,41
1935 .................... 2331 13,47
1936 .................... 2064 12,77
1937 .................... 2227 13,16
1938 .................... 2644 13,39
43. Reijðarfjörður. 1934 og 1938 er sett færra á af
lömbum, en hin árin nokkuð svipað. Þetta mun aðal
ástæðan til þess, að sláturlömbin eru flest þau tvö ár.
AHir sem svara bréfum mínum af þessu svæði telja
notkun ormalgfs liafa bætt heilsufar fjárins og það
svo aftur orðið til þess að meðaltalið hafi hækkar. Þá
telja þeir meðferðina hafa batnað, en enn séu þó ær
iátnar ganga of lengi frameftir tið haustinu og nefnir
einn sem dæmi, að ær sínar liafi frá 10. okt. til 30.
des. 1938, að hann tók þær, léttst um 7 kg. til jafnaðar.
Enn fremur ber mönnum sem svara bréfum mínum,
af þessu svæði, saman um það, að sá áhugi sem komið
hafi í menn við stofnun fóðurbirgðafélaga, en þau er
viða verið að stofna á þessum árum, hafi mjög ýtt
undir bætta meðferð, og stofnun þeirra hafi því leitt
til betri meðferðar og meiri arðs af fénu. Þegar þess er
gætt að á Reyðarfirði er nýrmör veginn með í nærri
öllum skrokkum, þá er sýnilegt að þunginn þar er
minni en á Eskifirði, og virðist þó hið gagnstæða vera
nær því sem inaður gæti búist við.
Ár Lambatalu Meðalfall
1934 ................. 23191 11,84
1935 ................. 19471 12,04
1936 ................. 17693 12,58
1937 ................. 19171 13,51
1938 ................. 21365 14,53