Hlín - 01.01.1934, Page 93
Hlin
91
þjónustu sinni, sem ferðast um landið þvert og endi-
langt, önnur hefur verið á ferðalaginu í 23 ár. Þær
flytja erindi og hafa sýniskenslu um heilsuvernd,
fræða almenning um hvernig verjast megi sjúkdóm-
um og koma í veg fyrir þá. Þessar 2 konur höfðu árið
sem leið 235 samkomur fyrir fullorðna og 136 fyrir
börn.
Þá hefur fjelagið komið upp mörgum smáhúsum
fyrir berklaveikar fjölskyldur. Þannig ræður Oslo-
umdæmið eitt yfir 27 íbúðum fyrir berklaveika og
hefur 738 sjúkrarúmum á að skipa. i umdæminu eru
178 fjelög og sjóðeignirnar 2/2 milljón, en /4 milljón
kr. á fjelagið í dánargjöfum. Af þessu má sjá, að fje-
lagsskapurinn allur í heild er ekkert smásmíði, þegar
ein deild hans (áttundi hlutinn) hefur svo mikið und-
ir höndum. — Árleg velta landsfjelagsins er líka alt
að því ein milljón krónur.
En hvaðan kemur nú fjeíaginu alt það fje, er það
hefur til umráða?
Margar stoðir renna undir fjelagsskap þennan.
Mest munar um styrkinn, sem það nýtur frá Happ-
drætti rikisins, (sá styrkur nam árið sem leið 178.250
kr.). — Af þessu fje hefur fjelagið veitt öllum um-
dæmunum lán með hagfeldum kjörum. Lánin eru nú
rösklega 2/% milljón króna.
Fjelagið nýtur mikilla vinsælda í landinu og hefur
því hlotnast fjöldi af dánar- og minningargjöfum.
Fjelagið hefur árum saman haft fasta stofna til
fjáröflunar. Jólamerkið er árlega gefið út fyrsta nóv.,
sama dag koma einnig merki Rauðakrossins og Natio-
nalforeningens (bæði fjelögin vinna fyrir berkla-
veika). Merki N. K. S. hafa gefið um 50 þúsund kr.
í árlegar tekjur.
Happdrætti fjelagsins byrjar árlega 30. nóv. Happ-
drættismiðarnir eru seldir á 25 aura, svo ekki er lítið