Hlín - 01.01.1934, Page 115
Blin
113
dálítil verslun á Hesteyri, en það er mest fyrir Sljettuhrepp.
En símaleysið tekur útyfir alt.
Það hafa verið framfarir til sjávarins síðustu árin að þvi
leyti, að margir hjer eiga sjer nú mótor- og trillubáta, alls
ellefu að tölu, eru flestir af þeim hafðir til aflafanga, þegar
hægt er, og svo til ferðalaga eftir þörfum. Líka hefur lifnað
yfir Búnaðarfjelaginu, síðan Jón Jónsson, búfræðingur í Kví-
um varð formaður þess.
Síra Jónmundur Halldórsson er prestur hjer hjá okkur.
Síra Jónmundur og kona hans, frú Guðrún Jónsdóttir, búa
mesta rausnar- og myndarbúi á Stað í Grunnavík. Þau hafa
bygt upp öll hús staðarins að nýju, sem, er mikið afreksverk,
enda er síra Jónmundur orðlagður dugnaðar- og hugsjónamað-
ur. Hann hefur sjálfur sagt fyrir öllu verki við byggingarnar
og unnið afskaplega mikið sjálfur. Hann er ekki eins og sumir
verkstjórarnir, sem sagt er um að segi bara fyrir og horfi á.
— Halldór sonur þeirra hjóna er búfræðingur frá Hvanneyri,
og er hann heima hjá foreldrum sínum; þar eiga þau hjón
góða aðstoð við að drífa áfram búskapinn og við jarðabæturn-
ar. Halldór er duglegur og vel metinn maður. Hann hefur
verið umferðakennari hjer í hreppnum undanfarandi ár.
Hjer var stofnað Ungmennafjelag 1929 af búfræðingi Hall-
dóri Jónmundssyni á Stað. Fjelagið hefur verið að byggja
samkomuhús smásaman undanfarið, ekki er hægt að koma þvl
í framkvæmd öllu í einu, því tekjurnar eru litlar, en margir
fjelagar hafa unnið við það 1—5 daga ókeypis.
Þess skal getið, að Halldór kaupmaður Halldórsson og kona
hans, Hólmfríður Benjamínsdóttir, búsett á Isafirði, gáfu ung-
mennafjelaginu blett undir húsið og stykki til ræktunar aí
eignarjörð sinni, Höfða, sömuleiðis 20 tunnur af sementi til að
byrja með, og varð það aðallega til að hrinda fjelaginu áfram
og er það höfðingleg gjöf. Halldór er fæddur og uppalinn á
Dynjanda af merkishjónunum Eósu sál. G. Elíasdóttur og
Benedikt Kr. Benediktssyni. Svona menn eigum við þó til, þó
Grunnvíkingar sjeu.
Hjer í hreppi eru 5 stórar prjónavjelar og sokkavjelar nærrl
því á hverjum bæ, og er það þó lyftistöng fyrir heimilisiðnað-
inn. Og fyrir skömmu keypti jeg 20 þráða spunavjel, smíðaða
af Jóni Gestssyni í Villingaholti, hún er ágæt og ljett í notkun
og ágætur frágangur á henni að öllu leyti. Mikill er munurinn,
að vera eins fljótur að spinna 20 þræði á vjelina eins og einn
þráð á rokk. g