Hlín - 01.01.1934, Side 123
HUn
121
eru flutt ofan úr afskektum sveitum og alt innbúið sýnt í sinni
upprunalegu gerð.
Hvenær fáum við íslendingar bóndabæ, torfbæ, með öllum
gögnum og gæðum við Reykjavík og' annan á Eyrarlandi, land-
námsjörðinni við Akureyri? — Það verður að fara að flýta
sjer að því, áður en það verður um seinan, áður en alt er týnt
og tapað og gleymt.
Ung stúlka, sem dvalið hefur um hríð í Noregi við vefnað
og vefnaðarnám segir svo frá: — Það er mjög mikið að tíðk-
ast í Noregi að nota heimaofið ullarefni til fatnaðar, þó meiri
tískublær sje á vefnaðinum en áður var. Alt, sem við ófum
til sölu, bæði til klæðnaðar og híbýlabúnaðar gekk vel út. —
Vefstólarnir, sem notaðir voru, voru flestallir einbreiðir og
Ijetu menn sjer það vel líka að nota einbreiðu fatáefnin, jafn-
vel ábreiður og dúkar var ofið á þessa einbreiðu vefstóla. Fjór-
skeftur vefnaður var lang algengastur. »Gömlu, íslensku vef-
stólarnir ættu eftir því að vera ágætlega nothæfir til hvaða
vefnaðar sem er hjer hjá oss«, segir stúlkan.
Úr Skaftártungu l V.-Skaftafellss. er skrifað 1933: — Kven-
fjelagið nýstofnaða í Skaftártungu gekst fyrir sauma- og vefn-
aðarnámskeiði hjer í vetur og tókst það vel. Námsskeiðið var
haldið í Hlíð, þar eru góð húsakynni og rafstöð. Nemendur
höfðu sameiginlegt mötuneyti, og skiftust á að matreiða, svo
kostnaður varð lítill. Námsskeiðið naut styrks af því fje, sem
alþingi veitir til verklegs náms í V.-Skaftafellssýslu, og af
Heimilisiðnaðarfjelagi íslands.
Námsslceiðið starfaði frá 3. jan. til 1. mars. Nemendur voru
9. — Þetta var unnið á námsskeiðinu:
Vefnaður:
Ýmiskonar utanyfírfataefni 70 m. 6 rúmábreiður. 4 bekk-
ábreiður. 2 veggrefliar (glitofnir). 6 sessur (krókbragð). 3
sessur (krossofnar). 6 stólsetur og ein sessa (glit). 1 dyra-
tjöld. 1 gólfrenningur (flosaður). Þetta allt úr íslensku bandi.
Úr útlendu efni: Gardínuefni 71 m. Hörhandklæði 17 m. Bað-
handklæði 8 m.
Saumaskapur:
4 alfatnaðir karlmanna. 5 drengjafatnaðir. 2 drengja-yfir-
frakkar. 10 pokabuxur. 10 kjólar. 2 kápur. 5 svuntur. 3 nátt-