Hlín - 01.01.1934, Page 124
122
Hlin
kjólar. 1 mansjettskyrta. Saumað í 4 kaffidúka, 3 sessur, 3
Ijósadúka. Prjónaðir og heklaðir 7 silkidúkar.
Leiðbeinandi almennings í heimilisiðnaða/rmálum sendi nokfor-
wm kvenfjelögum svohljóðandi áskorun: — Það væri æskilegt,
að kvenfjelögin hlutuðust til um að koma því til leiðar, að
höfð væri sýning á hverju vori í sambandi við barnaprófin, á
því, sem börnin gera á heimilunn sínum yfir vetwrinn. Það
herðir bæði á börnunum og foreldrunum, en kennarinn þarf
að hafa áhrif og halda við áhuganum, þó hann hafi ekki kenslu
í þessari námsgrein í skólanum. Stúlkubörnin ættu að sýna
hvað þau geta í tóskap, prjónaskap og almennum saumum og
svo skógerð, ekki eintómt hannyrðafitl. — Drengir geta sýnt,
hve vel þeir geta tálgað ýmislega smáhluti, og' smíðað gagn-
lega hluti svo sem sleða, smábókahillur o. fl., líka hrosshára-
iðnað og tóvinnu.
Þessu má hrinda í framkvæmd án kostnaðar og án lagasetn-
inga. En »smekkurinn sá, sem kemst í ker, keiminn lengi eftir
ber«, ef börnin venjast snemma á áð að nota tímann til þarf-
legrar heimavinnu, þá verða þau dugandi menn á því sviði. —
Þetta ætti að verða áhugamál foreldranna, kennaranna og
barnanna. —
Sem svar við þessari málaleitun var shrifað úr sveit af Aust-
urlandi: — Svo var það um handavinnu barnanna í skólanum,
sem þjcr báðuð okkur kvenfjelagskonur að hlutast til um.
Jeg færði það í tal við kennarann og' bað hann að hafa áhrif
á heimilin og hafði hann áreiðanlega gert það, því til prófs
komu þessi 25 börn með 46 sýningarmuni, sem þau höfðu gert
heima yfir veturinn (handavinna er ekki kend í skólanum).
Þótti sýningin mjög lagleg og sum börnin höfðu gert mikið,
en sum aftur ekki neitt, svo þetta skiftist ekki hlutfallslega
jafnt. Vinnan var mest úr uli, hekl og prjón, ofurlítill út-
saumur. Drengirnir höfðu smíðað kassa og dregið í sóphausa
hrosshár.
Jeg held mjer sje óhætt að segja, að víðast hafi þessu verið
vel tekið og vakið áhuga hjá börnunum að sýna sem mest, sum
8 ára börnin höfðu hvað mest, enda minst heimtað af þeim af
bóklegu námi. ./. B.
Frá Kvenfjelagi Borgamess er skrifað: — Við keyptum tún-
blett með ungmennafjelagi Borgarness og erum að koma hjer
upp skrúðgarði. Fjelagið keypti trjáplöntur í hann fyrir 70
krónur s. 1. ár. — Við höfum verið að styrkja ýms gagnleg