Hlín - 01.01.1934, Síða 125
123
HUn
fyrirtæki hjer, svo sem kirkju, sjúkraskýlis og samkomuhús-
sjóði. Það vantar svo margt í þessum smáþorpum, það er Eétrl
aðstaða fyrir kvenfjelögin, þar sem bæjarfjelögin sjá um aðal-
framkvæmdirnar á öllum sviðum. 0. V.
Grasaferð swmarió 1933. — Jeg gat um það í vor á fundin-
um, að það stæði til hjá okkur að fara á grasafjall í sumar.
Við fórum 10 úr sveitinni og' vorum einn sölarhring í burtu,
fórum fram í Stafnsfell. Þoka og súld hafði verið dagana áð-
ur og talsverður kuldi. Laugardagsmorguninn 24. júní var lagt
upp og var þá enn þoka og' súld, en þegar komið var á áfanga-
stað og stigið var af hestbaki, skein sólin og' þokuna Ijetti.
Útsýni var svo dýrlegt að því verður ekki með orðum lýst. Það
sá suður um alla Eyvindarstaðaheiði og vestur um alla Kúlu-
heiði. Þá var jöklasýn hin fegursta. Eríksjökull, Hofsjökull og
Langjökull blöstu við í fjarska og- óteljandi vötn full að syngj-
andi svönum. Þá sást út á Húnaflóa og vestur um alla Húna-
vatnssýslu. Jeg vei'ð aldrei svo gömul, að jeg gleymi þessum
dýrlega sólarhring. Það var glaðasólskin allan daginn og' blæja-
logn, ekki sem best grasaveður. Jeg' tíndi þó 10 pund og tengda-
sonur minn annað eins. Grasatekjan var svipuð hjá stúlkunum,
sem voru með í ferðinni, en einn maður, sem var alvanur
grasatekju, hafði mikið meira og' var það leiðsögumaður okkar,
Halldór Ólafsgon, frá Skeggstöðum, hann þekti þarna hvern
stein og hverja þúfu, hafði verið mörg ár í Stafni. Hann var
sá besti leiðsögumaður, sem við gátum fengið.
Þó þátttakan væri ekki meiri en þetta, vona jeg að för þessi
verði til þess, að farið verði til grasa hjeðan næsta vor.
Grösin hef jeg notað í mjólk til miðdegismatar (ekkert ann-
að ákast, þegar jeg nota þau), og þykir okkur þetta sá albest!
mjólkurmatur, sem við fáum, læt örlítið af salti og sykri 1
þetta.
Frú Björg sál. Þoi'láksson vildi láta ungmennafjelögin gang-
ast fyrir því, að farið yrði til grasa. Það sýndist líka sanni
nær, að unga fólkið beitti sjer fyrir slíku, fremur en fullorðn-
ar konur eins og jeg og mínar líkar. Jeg þóttist samt góð, að
geta komið þessu í framkvæmd, og frekar vil jeg ráðleggja
fólki að fara upp til fjalla og fram til heiða, heldur en að
fara einhvern spöl með bílum til næstu kaupstaða eða þvíum-
likt, ef það vill fara einhverja skemtiferð.
E. G.