Dvöl - 01.10.1938, Síða 7

Dvöl - 01.10.1938, Síða 7
DVél 245 vör. Að hengja upp þvott í dag! Dnottinn minn, en það vit! Hún var falin bak við rekkju- voð, sem hún var að baksa við að festai á snúruna. Pað gekk ekki sem bezt, en hún stríddi við hana, rólega og æðrulaust, og bar sig- ur úr býtum. Nú var hann bráðum kóminn að hliðinu. En hver fjandinn, nú var allt um séinan. Hún hafði litið upp og komið auga á hann. Stundarkorn stóð hún steinþegj- andi og trúði ekki sínum eigin augum, svo hljóp hún fagnandi móti honum. ,,Dave!“ hrópaði hún. ,,Davey minn! Hvað veldur því, að þú kemur hingað á þessum tíma dags? Komdu inn; blessaður, komdu inn! En hvað það var gam- an að sjá þig.“ Þegar hann sá hana, fannst hon- um sem eitt andartak drægi úr sér allan mátt og fæturnir ætluðu að kikna, fannst allt þurrkast út og líða burt, nema gamla þráin, að taka hana í faðminn og þrýsta henni að sér. En svo fann hann allt í einu, hvernig sortnaði yfir þessari ástríðufullu löngun, fann, hve heimskuleg og ógeðsleg hún var: sakleysið í móttökum stúlk- unnar, eins og hún hefði ekkert bréf skrifað, og sljóleiki hennar fyrir því, sem honum hafði gram- izt svo sárlega, þetta tvennt varð til þess að reiði hans blossaði upp, hálfu bitrari en áður. „Þetta hér veldur því, að ég kem.“ Hann rétti út hrukkótt og bögglað bréfið, en undrunin yfir kíomu hans gerði það að verkum, að hún veitti bréfinu eða orðumi hans enga athygli, heldur talaðij og talaði í hamingju sinni og gleði og beið ekki eftir neinum svörum við spurningum sínum. „Komdu inn; blessaður, komdu inn log tylltu þér niður og fáðu þér glas af eplavíni til þess að kæla þig eftir gönguna í þessum hita. Komdu nú inn, komdu —“ 1 „Þetta hér veldur því, að ég kem!“ Hann greip fram í fyrir henni í miðri setningu, talaði hátt og hranalega og rak bréf- ið upp að nefinu á henni. Hún leit á það, en varð þess enn ekki vör, að hann var reiður. „Nú, já, bréfið frá mér, en við skulum ekkert fást um það núna, það er svo gaman, að þú skyldir koma og það svona óvænt.“ Var stúlkan brjáluð? Átti hún enga vitglóru í kollinum? „Ég endurtek það, þetta hér veldur því, að ég kem.“ Hann renndi niður munnvatni sínu og gerði hnykk á höfuðið um leið, blíndi á hana og það stríkkaði ískyggilega á húðinni kringum munninn. „í þessu bréfi hér færir þú fram ýmsar kvartanir viðvíkj- andi framkomu minni gagnvart þér. Þú berð mér liitt og annað á brýn og segir að ég sé ónær- gætinn við þig og sýnj þér ónóga
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.