Dvöl - 01.10.1938, Page 14

Dvöl - 01.10.1938, Page 14
252 D V Ö L mikið tog áður, þá væri hann drukknaður — ef til vill ertu líka ilrukknaður, Dave. Driottinn blessi oss og varðveiti oss, Kristur blessi ioss og varðveiti oss, Drottinn blessi — Hvrr var hann staddur? Fyrst í stað gat hann ekki risið upp; svo brölti hann á fætur mitt í lauffallinu af hríslunum og fann, að hann var ómeiddur. Himininn var heiður, óveðrið var liðið hjá; rennvot jörðin glitraði í sólskin- inu io g þúsundir fugla sungu tryllta fagnaðar- og þakkarsöngva fyrir 1; usnina úr yfirvofandi hættu. Hann skjögraði út að götunni, \raltur á fótunum, en furðulega pkýr í hugsun og anda, og styrk- urinn óx við hvert fótmál. Undan fótum hans flaug lævirki með feikna látum og fyllti toftið áköf- um tofsöng. Þá mundi hann allt í einiu eftir nokkru og nam staðar í skelfingu. Daisy! öll beiskjan og reiðiofsilnn í sál lians hnfði sópazt burt með óveðr- inu; nú, þegar hugur hans var orðinn hreinn og heill, milnntist, liann óttasleginn þess, sem gerzt Jiafði áður en óveðrið skall á. Daisy — hvað hafði orðið um hana, ef til vill hafði hún legið með/itundarlaus úti! í óveðrinu og vaknað í hræðslu-ofboði, risið á fætur og, farið að hlaupa og orðið svo fyrir eldingu? Hann kveink- aði sér eins og við sársauka og féll á kné í götunni. ö, guð, þú, sem þyrmdir þínum óverðugum þjóni — nei, hann var enginn þjónn guðs, hann, sem ógnaði varnarlausum kónum og fleygði þeim til jarðar, hann var óþokki og illmenni, — en þyrmdu henni, ó, guð; láttu hana ekki deyja. Ó, guð, ég elská hana og ef til vill hefi ég drepið hana. Hann staulaðist á fætur og lagði enn einu sinni af stað út á heiðina, sömu leið og hánn hafði kömið, knúinn áfram af skerandi sálarang- ist, þótt ekki kæmist hann nú hrað- aryfir en á seinagangi. Hvað hafði komið yfir hann, að hann skyldi haga sér svona? Hann hafði ver- ið vitskertur, haldinn af djöflin- um, eins og einhversstaðar stend- ur skrifað. Stúlkukindin, nú sá hann, hvernig í öllu lá. F>að voru gæðin hennar, sem hann hafði ráðizt á. Þegar þau voru saman, elskaði hún hann svo mikið, að hún gat ekki neitað honum um neitt. En þegar hann var farinn, rifjuðúst auðvitað upp fyrir henni orðin, sem móðir hennar sáluga hafði sagt við hana — orð, sem hann nú sá í hendi sér, að hún gat ekki lagt rétta merkingu í eða skilið til hlítar, vegna þess að hún var saklaus og þekkti ekki heiminn, blessað litla hjartað. Og þannig hafði hlýðnin gagnvarthin- um látna ráðgjafa og heiðarleg löngun til þess að fylgja út í yztu æsar ráðleggingum, sem hún hafði verið of ung til að bera fullt skyn á, þetta hvorttveggja hafði orðið þess valdandi, að hún skrifaði

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.