Dvöl - 01.10.1938, Side 54

Dvöl - 01.10.1938, Side 54
292 0 VÖL eins og maka hennar áður. Þegar hún var orðin innikróuð, hóf hún sig til flugs. Hann gerði slíkt hið sama og með því að fylgja henni fast eftir, flæmdi hann hana á undlan sér niður eft- ir allri á, í áttina til hafs, lengra og lengra frá maka sínum. Að Lokum gafst hún upp og lét fall- ast niður á vatnið. Hann settist skammt frá hennt og synti svo til hennar og lagði sína upptendr- uðu og blómstrandi hvítu fegurð fyrir fætur hennar. Hún beygðí hálsinn og hjúfraði höfuð sittupp við bringu hans. Síðan syntu þau i'ólega af stað í sameiginlega veiði^ för. Hann hafði fundið nýjan maka. Síðar flugu þau niður með ánni, langt burt áleiðis til sjávar.! Innan skamms kom vorið, og d.ag einn, þegar vindur blés af suðri, hóf fjallasvanurinn sig til flugs og hún fylgdi honum. Enn- þá flaug hann undan vindi, en nú aðeins norður á bóginn, yfir flóann, þvert yfir landflæmið hrjóstruga og yfir sjóinn fyrir norðan það, þar sem stóru klett- arnir vörpuðu svörtum skuggum á sjóinn og vísuðu honum leið. Nú skein sólin á fjallavatnið, og ofan hlíðarnar og gilin steyptust bjartir síniðandi lækir, fuglarnir ^ungu í trjánum og fiskarnir gripu flugurnar, sem flutu á vatninu. Fjallasvanurinn leiddi maka sinn að hreiðrinu í sefhólmanum, þar sem hann hafði skilið við lík síns fyrra förunauts. Það var hér enn- þá, hreiðrið, en líkið hafði flot- ið burt í vorleysingunum. Pau tóku að laga hreiðrið, svo að hún gæti orpið í það eggjunum þeirra. pórarinn Guðnasion þýddi. Líam O'Fíahcriy Liam O’Flaherty er írskur rithöfund- ur, jafnaldri L. A. G. Strong (sjá bls. 255), kominn af fátækum og heittrú- uðurn katólskum foreldrum, og drakk hann auðvitað skoðanir þeirra og lífs- viðhorf í sig með móðurmjólkinni. Hcnn gekk á jesúítaskóla og ætlaði að gerast prestur, en þegar stríðið skall á, hélt hann til vígvallanna i mikilli hrifningu, einkum vegna þess að nú átti að bjarga liinni „katólsku Belgíu“. En hann varð brátt ánægður af stríðinu og sneri jafnframt baki við öllum sínum fyrri hugsjónum, meira og minna blönduðum heittrú og dulspeki, og síðan liann fór að fást við ritstörf hefir berlega komið í ljós. að raunsæismenn á borð við hann eru ekki á hverju strái. 1 stríðinu varð hann fyrir áfalli, hélt heim til sín og lét mikið til sín taka meðan ólgan var mfösSt í Irlrndi um þessar mundir. Eft- ir stríðið „lagðist hann í flakk“, ef svo mætti segja, og er erfitt að benda á það starf, andlegt eða líkamlegt, sem þessi rúmlega fertugi maður hef- ir ekki lagt fyrir sig einhvern tímg á æf.nni. T. d. má nefna, að hann hef- ir verið starfsmaður á járnbrautum, þjcnn á veitingahúsi, griskukennarl við háskóla í Suður-Ameríku og verk- fallsleiðtogi i New-York. Auk þess

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.