Dvöl - 01.04.1946, Blaðsíða 7

Dvöl - 01.04.1946, Blaðsíða 7
DVÖL 85 En þetta var ekki lengur Vasco Gomez. Vasco Gomez var hér — Vasco Gomez var nú hér — aleinn. Hann fann sjálfan sig smækka við þessar hugsanir, smækka eins og briggskipið, sem hvarf. Brigg- skipið hafði líka verið traust og stórt í fyrstu — síðan smækkað — loks orðið eins og leikfang — smá- depill á haffletinum. Þannig var því varið með hann. Hann sá lítinn mann á lítilli eyju — dverg settan niður á spónfylli af jörð mitt í endalausri víðáttu hins bláa hafs. Svitinn stóð í dropum á enni hans, þó að hann hefði ekki unnið sér erfitt. Þegar hnífur hans sneið spænina úr trénu, sem hann var að telgja, heyrðist ofurlítill hvinur — og þessi hvinur var eina hljóðið, sem heyrðist. Honum fannst hann heyra þetta hljóð dreifast í allar áttir yfir láð og lög og hvergi mæta neinu öðru hljóði, sem það gæti samlagazt, — og hvergi — mæta — neinu — öðru — hljóði---------- Allt í einu reif hann sig upp úr þessum hugsunum. Hann vissi, hvað olli þeim. Hann hafði nú dvalið á eynni næstum fimm mán- uði, að því er hann ætlaði. Hann vissi, hvað stundum kom fyrir menn, sem voru svona einmana, þekkti augnaráð þeirra og vissi, að þeir þóttust oft heyra annarlegar raddir umhverfis sig. Hann hafði ekki búizt við, að nokkuð slíkt kæmi fyrir sig, hann var of þrekmikill og skynsamur. En ef svo var, þá það — hann vissi nú hvar hættan var og gat verið á verði gagnvart henni. Strax og hann var kominn að þessari nið- urstöðu, varð hann hressari. Him- inn og jörð fengu aftur á sig svip hversdagsins. Hann hafði tæpast búizt við aö ljúka smíði bátsins á minna en tíu dögum, en vinnuákafinn tók hug hans allan. Meðan hánn vann, gat hann ekki orðið að engu — og himinn og haf gengu heldur ekki úr skorðum. Annað slagið var hann ósjálfrátt að hafa yfir spakmæli á hrognamáli, sem Indíánarnir töluðu. Og sjálfur hlustaði hann áfergjulega, þegar orðin féllu af vörum hans. En þó var þessum orðum í einhverju ábótavant — þau skorti hreim einhverrar radd- ar, sem ekki væri hans eigin. Að fjórum dögum liðnum var báturinn fullgerður og kominn á flot á voginum. Hann hafði verið að safna vist- um síðustu mánuðina. Hann hafði jafnvel búið sér til kagga undir vatn. Það tók ekki nokkra stund að koma þessu um borð aða ganga frá hinum einfalda seglabúnaði. Hann furðaði sig á því, meðan hann fermdi bátinn, með hve ó- sjálfráðum flýti hann gerði það. Ekki skipti það nokkru máli, hvort hann leggði úr höfn að viku liðinni, eða ekki fyrr en eftir mánuð, stormatíminn var nú liðinn. En þessa síðustu daga var tíminn ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.