Melkorka - 01.12.1944, Blaðsíða 9

Melkorka - 01.12.1944, Blaðsíða 9
Halldóra Ó. Guðmundsdóttif í fám orðum, því var tekið sem einsdæmi og fávísi, að konur gerðu kröfu til sömu launa fyrir sömu vinnu. Mér er ekki kunnugt um, að konur hafi einu sinni gert kröfu til fullra launa nema í þessu til- felli, hvað þá heldur fylgt því fram til sigurs. Slíkt tómlæti má ekki lengur svo til ganga. Löggjöfinni samkvæmt ber karlmanninum að sjá fyrir konunni. Hvað lízt ykkur um þessa löggjöf? Hafa karlmenn yfirleitt ráð á meiru en að sjá fyrir eiginkonunni og ef þeim auðnast að eignast og ala upp nokkur börn ? Hvað er svo um systurnar og dæturnar? Vitanlega er gert sem hægt er til þess að gifta þær og losna þannig við ábyrgðina. Annars held ég, að karlmönnum muni ókunn- ugt um þessa ábyrgð sína samkvæmt löggjöfinni, að öllum líkindum vegna þess, að það munu margir mannsaldrar síðan þeir höfðu ráð á að standa undir henni. Systurnar og dæturnar hafa orðið að sjá um sig sjálfar, og eiginkonan hefur líka misst mann sinn og börnin föður sinn og konan orðið að taka skyldur hans á sínar herðar. Og þá var það, að konan gerðist verkamaður. Orðið „verkakona“ átti aldrei að vera til. Hún gekk að sömu verkum og karlmenn, afköstin voru engu minni, þarfirnar þær sömu, hún var bara verkamaður. Hver sá, er stundar vinnu, verður að hafa laun miðuð við þarfirnar, og er ekki sama, hvort það er karlmaður eða kvenmaður, sem er nauðbeygður til að sjá fyrir sér og sínum? Konur, sem semjið um laun ykkar! Gerið ykkur Ijóst, hvers þjóðfélagið krefst af ykkur og hagið kröfum ykkar samkvæmt því. Við höfum farið heimskulega að ráði okkar að láta kalla okkur „verkakonur“ og skammta okkur laun samkvæmt því. Það er málsbótin, að það var neyðin, sem rak konur til verka. Verkalýðssamtök voru þá engin. Það var svo auðgert að hafa ráð lítilmagnans í hendi sér. Konan hefur unnið árum saman fyrir svo litlum launum, að hún hefur aðeins með ýtr- ustu sparsemi getað dregið fram lífið, og það er mikið átak, sem þarf til þess að losna við okið. Mér er fullljóst, að okkar bíður þrekraun til að ná hinum sjálfsagða rétti okkar til fulls jafn- réttis og það þarf mikla sjálfsafneitun til þess að standa e. t. v. í margra mánaða verkfalli, en þar er verkamannsins eina vopn, og aðeins með þeim samtökum, sem nauðsynleg eru lil að beita því vopni, liafa þær kjarabætur náðst, sem fengnar eru, og þó eru allt of litlar enn konum lil handa. Takmarkið er: Fullt jafnrétti. FYRIR RÉTTI: Akærandi var að yfirheyra vitni, sem var töfrandi fög- ur, Ijóshærð, ung stúlka, með stór blá og yndisleg augu. Ákærandi hallaði sér áfram og hrópaði: -— Ilvar voruð þér á mánudagskvöldið? Ljóshærða stúlkan hrosti hlíðlega. — I bílferð, svaraði hún. — Og hvar voruð þér á þriðjudagskvöldið, þrumaði lögfræðingurinn. — í bílferð, endurtók fallega stúlkan. Lögfræðingurinn færði sig enn nær. — Og hvað ætlið þér að gera annað kvöld? Verjandinn stökk nú upp af stólnum. — Herra dómari, hrópaði hann. Ég mótmæli þessari spurningu. Dómarinn ypti öxlum. — Af hverju mótmælið þér? spurði hann rólega. Verjandinn rétti sig upp virðulega og sagði með vand- lætingarsvip: — Af því ég spurði hana fyrst. MELKORKA 39

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.