Melkorka - 01.12.1944, Blaðsíða 21

Melkorka - 01.12.1944, Blaðsíða 21
LEIKRIT Ejtir Þórunni Magnúsdóttur (Atriði ur II. JíŒtti) Frú Breiðdal, öldruð kona, eigandi heimilis- Jdaðsins Blysið, Erna, ung kona, blaðamaður við Blysið. I fjarveru ritstjórans gegnir Erna störfum hans og birtir þá í hlaðinu grein, er ræðst á það úr- elta heimilisfyrirkomulag, sem heftir nám, vits- munaþroska og frama hinnar námfúsu, gáfuðu og metnaðargjörnu konu. Jafnframt bendir hún á lausn þessa vandamáls. Þessi þáttur fer fram heima hjá Ernu. A borði í stofunni stendur ritvél hennar og vélritaðir papírsrenningar. Ungur maður er staddur hjá henni. Hann á mjög einkalegt og viðkvæmt er- indi við hana, en hefur ekki lokið því, þegar har- ið er að dyrum. Erna: Kom inn! Frú Breiðdal (kemur inn): Gott kvöld! (Erna og Þorgeir rísa á fætur og taka kveðju hennar. Frú Breiðdal lítur á Þorgeir). Má ég tala nokkur orð einslega við frúna? Þorgeir: Sjálfsagt. (Við Ernu): Ég kem fljót- lega aftur. Sæl á meðan! (Kveður frú Breiðdal með höfuðbeygingu. Út). Erna: Vertu sæll. Gjörið þér svo vel að fá yður sæti, frú Breiðdal. (Frú Breiðdal sezt). Það var leiðinlegt, að þér skylduð hrekja yður út í þetta vonda veður til að finna mig. Ég hefði auðvitað komið til yðar, ef þér hefðuð sent mér hoð. Frú Breiðdal: Eg las greinina yðar ekki fyrr en í kvöld og þá voruð þér farin af skrifstofunni. En það gerir ekkert til, ég læt ekki veður aftra mér. Það býður mér ekki byrginn. Erna: Þér ætlið ef til vill að gera athugasemdir við greinina mína. Frú Breiðdal: Athugasemdir! 011 greinin frá upphafi til enda er sú hneykslanlegasta ritsmíð, sem ég hef augum litið. Erna (brosir): Þér takið djúpt í árinni, frú Breiðdal. Frú Breiðdal: Sízt of djúpt. Mér yfirsást hrap- allega, þegar ég réð yður að blaðinu og sýndi yð- ur traust mitt og vinsemd. Nú skilst mér, að ég hef alið nöðru við harm minn. Þér hafið ráðizt inn í þann rann, sem mér er helgastur. Erna: Ég þykist ekki á nokkurn hátt hafa brugðizt trausti yðar, frú Breiðdal. Frú Breiðdal: Nei, ekki það, og þó hafið þér á lúalegasta hátt svívirt heiðarlegt hlað. Þér hafið notað yður fjarveru ritstjórans og traust mitt til þess að gegnsýra blaðið með yðar siðspilltu og afvegaleiðandi skoðunum. Erna: Þær skoðanir, sem grein mín byggist á, eru tímabærar og í alla staði eðlilegar. Frú Breiðdal: Eðlilegar! Já, ekki spyr ég að. Það þarf víst engan að undra hér eftir, þótt þér haldið því fram, að konan hafi ekkert sérstakt hlutverk að rækja í þjóðfélaginu, engar skyldur við hörn sín og heimili. Já, fjölskyldulíf er auð- vitað hlægilegar fornleifar í yðar augum. Erna: Er það ambáttarstaða konunnar og hið sameiginlega matborð, sem skapar fjölskyldulíf? Frú Breiðdal: Þér hártogið og rífið sundur. Þér viljið ekki sjá fegurð fórnarinnar. Þér talið um ambáttarstöðu, en skiljið ekki, að konan nær sínum æðsta þroska í sjálfsafneitun sinni og ó- þreytandi umönnun um þá, sem hún elskar, frjáls þjónusta er ekki, þrælkun. Þér farið háðulegum orðum um hið sameiginlega matborð, sem tengi- lið, og er þó sænrilega augljóst að umhverfis það á hver venjuleg fjölskylda flestar samverustundir. Auk þess sem við það er bundinn þýðingarmikill þáttur í starfi húsmóðurinnar. Það er nú almennt skilið og viðurkennt, að heilbrigðisleg velferð þjóðarinnar hvílir að mestu leyti á starfi hús- MELKORKA 51

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.