Melkorka - 01.12.1944, Blaðsíða 17

Melkorka - 01.12.1944, Blaðsíða 17
E R I N D I flutt af Katrínu Thoroddsen lœkni, á útiskemmtun Hringsins, 8. júlí 1944 Líklega hafa flest ykkar, sem hér eruð saman komin, lagt leiSina upp í Menntaskóla og litið á sögusýninguna þar. En svo einstætt tækifæri til að rifja upp sögu þjóðarinnar á fyrirhafnarlítinn hátt ætti enginn að láta sér ganga ónotað úr greipum. Á 'sögusýningunni er geysimikinn fróð- leik að finna og margt er þar örvandi og ánægju- legt, þó hitt sé fleira, sem ömurlegt er og ægilegt. Hroðalegustu munir sýningarinnar eru tvö snotur veggspjöld, sem lítið fer fyrir. Á annað þeirra er letruð skrá yfir hungur- morðin á öldum áður. Mannfellir vegna hallæra og þar af leiðandi hungurs og sótta var svo gífur- lega mikill og hryllilega tíður, að enginn vafi er á, að hér hefði orðið algjör mannauðn, ef lega landsins væri ekki afskekkt og byggð þess dreifð. Vegna ills aðbúnaðar var svo að íslenzku þjóð- inni sorfið, að fjarlægðin ein gat firrt hana dauða. Við alfara braut hefði tortíming verið óumflýjanleg. Á hinu spjaldinu, sem ég gat um, er skýrsla um ógurlegan ungbarnadauða og ber haun ekki síður óhugnanlegan vott um eymd íslendinga í erlendri umsjá. Heilsufar ungbarna og lífsþróttur er lang- samlega nákvæmlegasti mælikvarðinn á velmeg- un þjóða, þroska, þrifnað og þekkingu. Mikill ungbarnadauði er ótvíræður votlur um óþrifnað, örbirgð, ill húsakynni og vanþekkingu og er því einatt samfara ofþjökun og ánauð. En um allt þetta var yfrið nóg á íslandi áður og ekki hefur því verið útrýmt ennþá, þó umbætur séu allveru- legar. Á sögusýningunni er ekki seilzt ýkja langt aftur í tímann. Skráin um ungbarnadauðann hefst á árunum 1841—1851. Á þeim 10 árum dóu að meðaltali árlega 343 börn af hverju þúsundi, eða með öðrum orðum náði rúmur þriðjungur barn- anna ekki eins árs aldri. Nokkuð hefur barna- dauðinn vafalítið verið misjafn frá ári til árs, en ávallt meiri í þéttbýli en strjálbýli. Langt fram á 19. öld voru Vestmannaeyjar ill- ræmdastar allra byggða landsins sakir mikils barnadauða, því sjaldgæft var, að nokkur ný- klakkningur lifði þar af. Banamein Eyjabarnanna var ginklofi (tetanus), sem er afar kveljandi krampasjúkdómur. Ginklofanum veldur lífseigur sýkill, sem hefst við í jarðvegi, taði og því um líku. í Vestmannaeyjum var eins og víða annars staðar í þann mund lítið um snæri og stög. Þvott- urinn var því breiddur til þerris á garða og grundir. Þaðan barst sýkillinn í fatnaðinn, þar á meðal í lindann og barnið smitaðist svo gegnum lækstúfinn. Þetta var áður en suðusótthreinsun þekktist og ekki varð komið í veg fyrir hinn ill- ræmda Vestmannaeyjaginklofa fyrr en danskur læknir, er þar var staddur, ráðlagði að búa um lækstúfinn með balsami nokkru. En áður en svo langt var komið, freistuðu flestar konur, er tök höfðu á, að flytja til lands og ala hörn sín þar. Þær, sem svo forsjálar voru að fara með barna- fatnaðinn til lands, þveginn og þurrkaðan í Eyj- um, fengu auðvitað ekki umflúið ginklofann. Börn hinna, sem þvoðu þvottinn á landi, áttu svipaða lífsvon og önnur íslenzk hörn, en hún var eins og áður er sagt næsta óglæsileg. Dánar- orsakir barnanna voru vitanlega margskonar. Skæðastar hafa umferðasóttir vafalaust verið. Meðfædd veiklun vegna vaneldis móðurinnar og meltingarsjúkdómar vegna rangrar og ófullnægj- andi fæðu hafa þó einnig átt drjúgan þátt í dauð- anum. Hve foreldrunum var átakanlega ljós háskinn, sem barnanna beið, sést meðal annars á því, hve títt það var að gefa tveimur og jafnvel fleirum systkinanna sama heitið, ef koma átti upp á- kveðnu nafni. Vafalaust á sú hégilja, að óheill MELICORKA 47

x

Melkorka

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.