Melkorka - 01.12.1944, Qupperneq 11
SuSurborg.
Leikskólinn — síðdegisdeild.
(Fingramálning).
mótuð af foreldrum sínum og heimilum. Reynsl-
an hefur sýnt, að misfellurnar eiga rætur að rekja
til þröngra lífskjara og vanþekkingar á réttum
uppeldislögmálum.
Það er hverjum meðalgreindum manni ljóst,
hve erfið lífskjör, svo sem húsnæðisleysi og skort-
ur á brýnustu lífsnauðsynjum, koma hart niður á
börnum, krenkja þau líkamlega og andlega, svo
að þau verða visin og föl eins og skuggagróður.
En það er þjóðfélagsvandamál, sem framtíðin á
eftir að leysa. Hitt er mönnum síður ljóst, hve
brýn þörf öllum, sem við barnauppeldi fást, er á
hagnýtri fræðslu í þeim efnum. Hve sumuin skilst
það seint, er ef til vill að kenna gömlum slagorð-
um um óbrigðult „brjóstvit“ móðurinnar. Þá er
vitnað í ljóð ágætra skálda þessu til sönnunar.
Enda þótt slík ummæli eigi rétt á sér að því er
snertir úrvalsmæður, er það enginn algildur mæli-
kvarði. Og reynslan sýnir margsinnis hið gagn-
stæða. Hvers vegna kunna þá ekki allar konur
að matreiða, sauma og ræsta heimili, af „brjóst-
viti“ einu saman?
Brýna nauðsyn hefur þótt bera til, að reisa
húsmæðraskóla, helzt í hverju héraði, til þess að
kenna handtökin, sem áðurnefnd störf krefjast.
En í hinu veglegasta starfi, sem flestra húsmæðra
bíður, hinu andlega og líkamlega uppeldi barna
sinna, hafa húsmæðraskólanemendur litla sem
enga tilsögn fengið.
Það er því ekki að ófyrirsynju, að vaknaður
er nú skilningur á því reginhneyksli, að uppeldis-
og sálarfræði, ásamt meðferð ungbarna, skuli
skipa svo lágan sess, sem raun ber vitni, við hús-
mæðra- og kvennaskóla landsins, en bróderingar
og sósugerð látin skipa öndvegið. Vorið 1938 var
samþykkt svofelld tillaga, á sambandsfundi norð-
lenzkra kvenna, höldnum á Laugalandi í Eyja-
firði:
„Aðalfundur Sambands norðlenzkra kvenna
skorar á skólaráð húsmæðraskólanna og yfir-
stjórn fræðslumálanna, að taka nú þegar hagnýta
fræðslu um uppeldismál og meðferð ungbarna
inn í húsmæðra- og kvennaskóla landsins.“
Með hagnýtri fræðslu og meðferð ungbarna
var átt við barnadeildir í sambandi við skólana,
þar sem nemendur fengju verklega tilsögn og
starfsæfingu, ásamt bóklegu uppeldis- og sálar-
fræðisnámi. — Síðan þetta var samþykkt á aðal-
fundi S. N. K. 1938, hafa fleiri kvenfélög og
kvenfélagasambönd tekið í sama streng og sam-
þykkt ályktanir, á fundum sínum, í svipaða átt.
Við það hefur þó verið látið sitja, enn sem komið
er, en mál er nú að hefjast handa um fram-
kvæmdir.
melkorka
41