Melkorka - 01.12.1944, Síða 12
Áður var þess getið, hversu bæjauppeldið
krefðist mikillar árvekni og vinnu í þágu barn-
anna. Þetta hafa framsýnir menn skilið. Voru þá
í Reykjavík, sem vænta mátti, fyrst stofnaðir
leikvellir og dagheimili. Þar hefur barnavina-
félagið „Sumargjöf“ haft forystuna og fyrir á-
huga og óþreytandi elju sinna beztu manna hefur
það aukið starfsemi sína ótrúlega ört. Starfrækir
félagið nú tvö stór dagheimili og leikskóla, tvö
vistarheimili og vöggustofu. Njóta þannig um
hálft þriðja hundrað barna daglegrar aðhlynn-
ingar félagsins.
Þessum stofnunum er ætlað tvennskonar hlut-
verk. Annarsvegar að bæta úr og létta erfiðar
heimilisástæður og hinsvegar að veita börnunum
holl uppeldisáhrif við leik og störf. Það er mark-
mið dagheimila og leikskóla að styðja foreldra í
uppeldisstarfi, með því að fræða börnin og
vernda þann tíma dags, sem foreldrar eru störfum
hlaðnir, en skila þeim svo heim á kvöldin hrein-
um og glöðum í móðurfaðm og föðurarma.
Það er hlutverk vöggustofu og vistarheimilis, að
ala upp munaðarlaus börn og gera þau andlegaog
líkamlega hraust og siðug. En á þessum vettvangi
sem annars staðar fer uppskeran eftir sáningunni.
Þroski plöntunnar fer eftir jarðvegi, ljósi, lofti
og umhirðu. Barnið sýnir greinileg merki ytri og
innri aðbúnaðar. Þess vegna verður að setja
kröfurnar hátt fyrir börnin og láta sér eigi nægja
nema hið bezta að lokum. Þó þessum málum sé
vel á veg komið, mest fyrir dugnað forgöngu-
mannanna, þarf lengra að stefna. Fleiri barna-
heimili þarf að reisa, því að það mun reynast
hyggilegra heldur en að kaupa gömul hús, ó-
hentug til þessarar starfsemi. Hin mikla aðsókn
sem ekki er hægt að íullnægja, sýnir ljóst, hve
þessi þörf er rík. Þá þarf og innlenda leikfanga-
gerð, sem starfi af þekkingu og smíði haldgóð
og þroskandi leikföng. Og síðast en ekki sízt þarf
að rísa upp skóli fyrir fóstrur og leikskóla-
kennara.
Það er augljóst, að ekki er hægt að velja
hvaða stúlku sem er til barnagæzlu, tæplega í
heimahúsum, hvað þá á barnaheimilum, sem hýsa
marga tugi barna. Stúlkur,sem velja sér það starf,
verða, ef vel á að fara, að vera gæddar sérstök-
um eiginleikum og hafa ræktað þá og þjálfað við
nám og starf. Þetta hafa nágrannaþjóðir okkar
skilið fyrir löngu og komið upp slíkum skólum
hjá sér. Þeir sem nokkur kynni hafa af þessum
málum, hér á landi, vita líka vel, hve fóstruskóli
er orðin knýjandi nauðsyn og í raun og veru jafn-
T jarnarborg.
Dagheimilið — yngsta deild.
Miðdagsdúrinn.
42
MELKORKA