Melkorka - 01.12.1944, Síða 15
4. mynd.
húsinu í ákveðinni röð og við sjáum þá, að hent-
ast er, að staðirnir, þar sem starfið er unnið,
efnið og áhöldin, sem notuð eru, séu í þeirri
sömu röð.
Við skulum nú horfa á mynd 1 og 2 og hugsa
okkur, að við búum til jólaköku. í hana þurfum
við t. d.: hveiti, sykur, smjör, egg, rúsínur, mjólk,
lyftiduft og kardímómur. Við þurfum skál til þess
að búa hana til í og sleif til að hræra, mót til að
baka í. Nú er bezt að athuga, hvernig starfið er
unnið í eldhúsi 1 og síðan hvernig það er unnið
í eldhúsi 2. Við hrærum kökuna við vinnuborðið,
náum í efnið í hana út í búr, tökum skál í leir-
skápnum, mót sennilega í uppþvottaborðinu og
sleif, guð má vita hvar; svo bökum við kökuna
í bakarofninum og hlaupum svo aftur með hana
að vinnuborðinu til þess að hvolfa henni úr mót-
inu. Ohreinu áhöldin flytjum við á uppþvotta-
borðið. Við starf þetta höfum við gengið mörg
spor (brotnu strikin á myndinni). A mynd 2
eru sporin sýnd færri. Á mynd 2 staðnæmumst
við við vinnuborðið, tökum skálina út úr skáp
í borðinu eða grynnri skáp fyrir ofan borðið og
sleifina upp úr skúffu, víkjum okkur til vinstri í
búr og þurrvöruskáp og tínum fram efnið, tök-
um mótið úr grunna skápnum fyrir ofan, sting-
um kökunni inn í bakarofninn lengst til hægri,
hvolfum henni úr á vinnuborðinu, og leggjum
óhreinu áhöldin á uppþvottaborðið við hliðina
á því. Brotnu strikin sína, að sporin eru mun
færri. Á sama hátt getið þið sjálfar borið saman,
hvernig þið munduð vinna önnur störf í þessum
tveim eldhúsum.
Til þess að glöggva okkur enn betur á niður-
röðun hlutanna, getum við sundurliðað eldhús-
5. mynd.
störfin og skipt eldhúsinu niður í starfsstöðvar.
Oftast er þá talað um fjórar aðalstöðvar, eftir
því hvaða störf eru unnin á hverjum stað í eld-
húsinu, matvælageymslustöð, tilbúningsstöð, eld-
unarstöð og uppþvottastöð. Ef borðað er í eld-
húsinu, bætist mötunarstöð við.
Myndirnar 3, 4 og 5 sýna: geymslu- og tilbún-
ingsstöð (3. mynd). Myndin er úr amerísku eld-
húsi og sýnir kæliskáp og hrærivél, vinnuborð og
þurrvöruskápa, fyrir þau áhöld, sem notuð eru
við tilbúning rétta.
Eldunarstöð (4. mynd) sýnir eldavél og potta-
skáp við hliðina á vélinni, en 5. mynd uppþvotta-
stöð, þar sem gert er ráð fyrir, að þvegið sé upp
í vaskinum, og óhreinum leir ætlað rúm vinstra
megin, en hreinum hægra megin. (Þetta er mjög
óvenjulegt í íslenzkum eldhúsum, því að jafnvel
þó að um uppþvottavask sé að ræða, er hann
venjulegast yzt úti í borðröðinni eða þá inni í
kröppu horni, svo að nær ómögulegt er að setja
frá sér, hvort heldur er hreinan eða óhreinan
leir).
Hver afstaða starfsstöðvanna í eldhúsinu er
æskileg getur farið nokkuð eftir lögun þess, en
margt er það, sem mælir með því, að uppþvotta
stöðin sé á milli til búningsstöðvar og eldunar-
stöðvar, eins og sýnt er á 2. mynd, en þó sérstak-
lega það, að á tilbúningsstöð og eldunarstöð þarf
oft vatn, en vatnskrani á að vera á uppþvotta-
stöð. Eins má nefna, að óhrein áhöld koma jafnt
á báðum hinum fyrrnefndu stöðvum, og er því
þægilegast, að uppþvottastöðin sé á milli þeirra.
Á 2. mynd eru allar stöðvarnar meðfram sama
vegg, en við gætum, ef gengið væri inn í eld-
húsið á öðrum stað, alveg eins hugsað okkur upp-
MELKORKA
45