Melkorka - 01.12.1944, Page 29
Fulltrúar á 6. landsjundi kvenna, ásamt nokkrum öðrum í heimsókn á Bessastöðum.
ræðukonur frá ýmsum stéttarfélögum sög'ðu blátt
áfram og umbúðalaust frá starfsaðstöðu sinni
og óréttlæti því, sem konur eru beittar í launa-
greiðslum, og erfiðleikunum, sem á því eru að
sameina starf og heimilislíf. Orð ræðukvenna
fengu góðan liljómgrunn í hugum þeirra, er
hlýddu, og engin, sem þar var viðstödd, mun
nokkru sinni gleyma því augnabliki, er hönd
hverrar einustu fundarkonu bófst á loft, eins og
þær allar væru hreyfðar af einum vilja, til þess
að samþykkja ályktanir fundarins.
Aðalályktanir fundarins í Iðnó, sem eru í raun
og veru jafnframt ályktanir landsfundarins í
samþjöppuðu formi, voru þessar:
„Almennur kvennafundur haldinn í Reykjavík
23. júní 1944 ályktar:
1) Að skora á Alþingi, að í væntanlegri stjórn-
MELKORKA
arskrá hins íslenzka lýðveldis sé konum
tryggður réttur til jafns við karla, og að
tryggt verði, að réttur móðurinnar verði ekki
fyrir borð borinn.
2) a) Að sjálfsögð krafa íslenzkra kvenna er,
að þeim sé tryggður aðgangur að öllum
iðngreinum að jöfnu við karla.
h) Að konur fái sömu laun fyrir sömu vinnu
og jafna möguleika til hækkunar í starfi.
Ályktanir landsfundarins voru samboðnar ís-
lenzkum konum í fyrstu viku liins íslenzka lýð-
veldis og vonandi nota þær hin nýju skipulögðu
samtök sín lil þess að gera þær að lifandi stað-
reynd.
R. K.
59
L