Melkorka - 01.12.1944, Síða 30
TILLÖGUR
samþylchtar á 6. Landsfundi íslenzkra kvenna
í júní 1944
Um breytingar á stjórnarslcrá hins íslenzka
lýðveldis:
1) Landsfundur kvenna gerir þá kröfu fyrir
hönd íslenzkra kvenna að jafnrétti karls og
konu sé tryggt sérstaklega í stjórnarskránni
og tekið fullt tillit til aðstöðu konunnar sem
móður.
2) Kona, sem misst hefur ríkisborgararétt sinn
með giftingu eða á annan hátt, hafi möguleika
til að öðlast hann aftur með umsókn til stjórn-
arráðsins eða næsta íslenzks sendiráðs í út-
löndum. Ríkisborgararéttur karlmanna endur-
heimtist á sama hátt.
3) Réttur gamalla manna og sjúkra til fram-
færslu sé tryggður af ríkinu án tillits til að-
standenda.
4) Konur hafi sama rétt sem karlar til allrar
vinnu og sömu hækkunarmöguleika og þeir.
Gifting eða barneign sé engin hindrun fyrir
rétti til atvinnu né ástæða til uppsagnar.
5) Allar konur, giftar sem ógiftar, eigi rétt á
fæðingarhjálp úr ríkissjóði.
6) Kona, sem er í atvinnu, eigi rétt á fríi frá
störfum, allt að 6 vikna tíma fyrir barnsburð,
og jafnlengi eftir, með fullu kaupi. Sé þetta
greitt úr ríkissjóði, að því leyti sem réttur
þessi er ekki tryggður með samningum eða
á annan hátt.
7) Kona, sem ein er fyrirvinna heimilis síns, eigi
rétt á launum úr ríkissjóði, til viðbótar öðrum
tekjum sínum, ef nokkrar eru, upp að vissu
lágmarki, sem geri henni fært að halda heim-
ilinu saman.
Tillögur til lagabreytinga:
í samrœmi við stjórnarskrárbreytingarnar:
1) Launalögum sé breytt samkvæmt þessum
grundvallarlögum og endurmat fari fram á
þeirri vinnu, sem kölluð er kvennavinna.
2) Landið sé allt eitt framfærslusvið og öll með-
lög greidd úr ríkissjóði.
3) Konur, sem sviftar eru fyrirvinnu vegna sjúk-
dóms, örorku, fangelsisvistar eða óreglu
manna sinna eigi rétt á meðlögum með börn-
um sínum á sama hátt og ekkjur.
Ennfremur var samþykkt svohljóðandi áskorun
til Alþingis:
Sjötti Landsfundur íslenzkra kvenna skorar á
Alþingi að bæta 4 konum í nefnd þá, sem fjallar
um endurskoðun stjórnarskrár hins íslenzka lýð-
veldis.
SMÆLKI
Hæverska er skart kvennanna. — Gallískur málsháttur.
Hágómaskapur gerir út af við fleiri konur en ástin.—
Madame du Deffard.
Kona blinda mannsins málar sig. Hver vegna? — B.
Franklín.
Sá sem eignast konu, eignast gersemi. — OrSskviðir
Salómons.
Glaðvær kona er mesta undur veraldar. — Enskt spak-
mæli.
Ekkert er verra en kona og það þó góð sé. — Uenander.
Konan er ómissandi ólán. — Latneskur málsháttur.
Eg þakka guði fyrir, að ég er ekki kvenmaður. —
Shakespeare.
Konur skulu þegja á safnaðarsamkomum. — Korintu-
bréfið.
Það var kona, sem leiddi manninn út úr Paradís. Og
engin nema hún getur leitt hann inn aftur. —E. Hubbard.
Hvílíkar skepnur hefðum við verið án kvenna. — Th.
Othway.
Ó, guðir. Gerið mig jafnoka minnar góðu konu. —
Ónefndur höf.
Eiginmaðurinn: — Mig langar til að hjóða Wooley til
miðdegisverðar í kvöld.
— Já, bjóddu honum einmitt í kvöld, hrópaði kona
hans, þú veizt að stúlkan rauk úr vistinni í dag, drengur-
inn er að taka tennur og ég er dauðkvefuð og við fáum
ekki kjöt fyrr en við erum búin að greiða reikninginn í
kjötbúðinni....
— Já, ég veit þetta allt, tók hann fram í, — þess vegna
vil ég endilega fá hann í kvöld. Mér er vel við Wooley
greyið, en nú er þessi ungi kjáni að hugsa um að fara að
gifta sig....
60
MELKORKA