Melkorka - 01.12.1944, Qupperneq 31
Fag- og fræðslusamband húsmæðra
Viðtal við Svöfa Þorleifsdóttur,
framkvœmdastjóra Kvenfélagasambands íslands
— Hvar býr Svafa Þorleifsdóttir? segi ég við
þrjá drengi á bryggjunni á Akranesi, um leið og
ég stíg út úr hraðferðabíl, sem numið hefur
staðar við borðstokk M.s. Víðis.
— Við hliðina á hótelinu, svarar einn drengj-
anna, því að allir kannast þeir við Svöfu, sem
verið hefur skólastjóri á Akranesi í fjölda mörg
ár.
Eg þarf að ræða við Svöfu, tilvonandi hús-
bónda minn, um starfið (sem ráðunautur hjá
K. í.) og held því ekki lengra um kvöldið.
Við byrjum að spjalla saman, meðan ég fæ mér
bita á hótelinu, og höldum svo áfram uppi hjá
Svöfu. Margt ber á góma um framtíðarstarfsemi
K. í., og verðum við vel ásáttar. Skyndilega
kemur blaðamaðurinn upp í mér, og ég bið hana
um viðtal til skýringar á afstöðu K. í. til ann-
arra kvennasamtaka, og um framtíðarstarf sam-
bandsins.
— Mér finnst menn oft á tíðum rugla algjör-
lega saman Kvenfélagasambandi íslands og
Kvenréttindafélagi íslands. Viltu ekki skýra af-
stöðu félaganna ofurlítið.
— Það mun vera rétt hjá þér, að menn gera
sér ekki Ijósan muninn á starfi og stefnuskrá
K. í. (Kvenfélagasambands íslands) og K.R.F.Í.
(Kvenréttindafélagi íslands) og vil ég því taka
það fram, að K. í. liejur jrá upphaji stefnt að því
að sameina áhuga hvennanna um öll jiau mál,
sem lúta að starji jteirra á heimilunum, og vill
því ná til allra hvenfélaga, sýslu-, héraðs- og
fjórðungssambanda á landinu, sem liaja Jtcssi mál
á stejnushrá sinni, án tillits til þess, að hvaða
málum þau vinna heima fyrir. Kvenfélagasam-
band íslands vill með öðrum orðum verða nokk-
urskonar jag- og frœðslusamband húsmœðra,
hliðstætt því sem Búnaðarfélagið er fyrir bænd-
urna.
Kvenréttindafélag íslands vill á hliðstæðan
hátt ná til allra félaga, félagsdeilda og einstak-
linga, sem hafa réttindamál hvenna á stefnuskrá
sinni. K. í. og K. F. R. í. eru því hvort öðru ó-
háð, en eiga það sameiginlegt að vera hvor-
tveggja landssamtök kvenna, aðeins um ólík mál-
efni. Einstök félög geta aftur á móti verið í
hvortveggja samtökunum, ef þau hafa bæði hin
faglegu mál húsmæðranna og kvenréttindamálin
á stefnuskrá sinni, og fullnægi að öðru leyti
þeim kröfum, sem hvor samtökin um sig gera
til þeirra.
— Jæja, ég hélt ekki, að pólitísk félög gætu
verið í K. í.
— Jú, pólitísk félög geta verið bæði í K. í. og
K. R. F. I., ef þau hafa einnig þau mál, sem áð-
ur um getur, á stefnuskrá sinni, en þó vil ég taka
það fram, að K. í. er og á að vera algjörlega
ópólitískt eins og önnur fagsambönd, og að K.
R. F. í. er ekki pólitískt að öðru leyti en því, að
það er hvenpólitísht, en hefur þó innan sinna vé-
banda alla pólitíska flokka.
— Þetta er líklega kostur. Fg hef oft verið að
hugsa um, hvernig fara ætti að því að fá konurn-
ar í bæjunum til þess að styrkja K. í. og taka
þátt í starfi þess, en þetta verður miklu léttara,
ef þær þurfa ekki að stofna ný félög, sem einung-
is væru húsmæðrafélög. Á þennan hátt þarf sama
konan ekki að vera nema í einu félagi, en getur
þó styrkt málefni beggja samtakanna, og haft
samband við þau, auk þess sem hún 'getur stund-
að aðra starfsemi innan félags síns, líknarstarf-
semi, pólitíska starfsemi o. s. frv.
— Já, það lield ég. Húsmæðurnar hafa ekki
svo mikinn tíma aflögu, að þær sæki fundi í
Melkorka
61