Melkorka - 01.12.1944, Page 34
„dramatiskan“ skilning og tilfinningu. — En
Camilla varð að láta sér nægja að vekja aðdá-
un á dansleikum og í samkvæmum Osloborgar,
þá sjaldan hún kom þar. Kemur sú aðdáun
greinilega fram í kvæði því, sem skáldið Wel-
haven orti um hana 16 ára gamla, en það hefst
með þessum Ijóðlínum: „Det blev en stans i
soiréen — da prestens datter trádte inn.“
Um þetta leyti hófu skáldaferil sinn jafnaldr-
arnir Henrik Wergeland og J. S. Welhaven. Þeir
voru eins ólíkir og frekast er unnt að vera, jafnt
í skáldskap sínum sem skoðunum. Wergeland á-
leit, að norsk menning ætti að standa á eigin fót-
um. Trú hans á hæfileika þjóðar sinnar var ó-
bifanleg — eins og trú hans á sigur hins góða í
heiminum. A sviði ritmennskunnar var hann
stórvirkur, en mjög hroðvirkur í æsku sinni og
skeytti lítið um reglur fagurfræðinnar. Ritstörf
Welhavens voru á hinn bóginn ekki mikil að
vöxtum, en kvæði hans voru fögur og fáguð að
formi. Hann hyllti þá menningarstrauma, sem að
undanförnu höfðu borizt að sunnan frá Þýzka-
landi yfir Danmörku til Noregs og mótað höfðu
norskt bókmenntalíf. Hann hafði opin augu fyrir
ýmsum ágöllum í norskri menningarsókn og
gagnrýndi þá harðlega. — Það er engin furða
þótt þessi tvö mikilhæfu ungu skáld yrðu for-
ustumenn tveggja andstöðuflokka. Á fjórða tugi
19. aldarinnar voru deilur þeirra í algleymingi,
og var höfuðvettvangur þeirra stúdentafélagið og
blöð Osloborgar. „Og það var glæsileg og
skemmtileg barátta, og allir horfðu á, en enginn
gaf gaum að þeim særðu og því blóði, sem út-
hellt var,“ ritar Camilla síðar.
En það var einmitt hún, sem dýpstu sárin
hlaut. Seytján ára gömul hafði hún kynnzt Wel-
haven, og hélst nokkur kunningsskapur milli
þeirra næstu 7 árin. Um tilfinningar og hugar-
far Welhavens til hennar er erfitt að segja. Bréf
og kvæði hans til Camillu bera þess vott, að hann
dáðist mjög að fegurð hennar, en um trúlofun
þeirra á milli var aldrei að ræða. Má vera, að hér
hafi ráðið miklu um sá óvildarhugur, sem Wel-
haven bar til föður og bróður Camillu. — En ást
hennar á hinu glæsilega unga skáldi var svo djúp
og staðföst, að hún fyrntist aldrei á langri ævi.
Döpur voru æskuár Camillu. Deiiurnar milli
Wergelands og Welhavens lögðust ákaflega þungt
á hana. Óvissan um hugarfar Welhavens til henn-
ar var henni mikil raun, en loks kom bréf, sem
„breytti æsku minnar ljósu töfranótt í langan
þreytudag.“ Verkefni hafði hún ekki með hönd-
um, sem voru í samræmi við gáfur hennar og
starfshæfni. Hún lifði „eins og skrautblóm“ í
föðurgarði, og þrálátt þunglyndi sótti að henni.
Hin dapurlegu æskuár Camillu urðu þó ekki
einskis nýt. Henni skildist brátt, að þjáningar
hennar voru þjáningar þúsunda annarra kvenna.
Vitundin um það knúði hina hlédrægu og við-
kvæmu konu til baráttu fyrir jafnrétti kvenna og
karla.
Hjúskaparár Camillu var gæfuríkasti tími ævi
hennar. Hún var 28 ára gömul, er hún giftist
Jonas Collett, prófessor, gáfuðum drengskapar-
manni. Hann skildi og mat mikils hina sérkenni-
legu skapgerð konu sinnar og reyndist henni
bezti vinurinn á lífsleiðinni. -—- Þó að Collett
væri lögfræðingur að menntun, voru það bók-
menntirnar sem stóðu huga hans næst. Hann var
hvorttveggja í senn, rithöfundur og ritdómari.
Kona hans hafði og mikla þekkingu og ágætan
smekk á bókmenntum. í æsku sinni hafði hún haft
mikil kynni af franskri og þýzkri bókmenntastarf-
semi auk norrænnar. Voru þau hjónin samhent
mjög í ritstörfum. Var það að áeggjan Colletts
að kona hans fór að skrifa smásögur í blöð —
að vísu undir dulnefni. Bar hinn fagri stíll henn-
ar mikinn vott franskra áhrifa, enda mun hún
að ýmsu leyti hafa tekið sér til fyrirmyndar stíl-
snilld frönsku skáldkonunnar Georges Sand. Vin-
sældir þær, sem sögur hennar hlutu, veittu frú
Collett aukið traust til ritstarfa, sem varð henni
mikils vert síðar meir.
Collett-hjónin voru svo samrýmd, að Cam-
illa sagðist ekki minnast þess, að þeim hefði
nokkru sinni orðið sundurorða. Því þungbærara
varð það henni að missa mann sinn eftir aðeins
10 ára hjónaband: „Tvö ein saman á eyðiey úti
í reginhafi; annað hverfur á brott, hitt verður
aleitt eftir, — hvernig má það vera?“
Ritstörf Camillu Collett veittu henni aukið
þrek til að bera sorg sína. Næstu árin eftir að
64
MELKORKA