Melkorka - 01.12.1944, Page 41
BJÖRG PÉTURSDÓTTIR
•N
Anður Vésteinsdóttir
Heit var lundin í sœrðu sinni,
er svíðing laust hún og hörð var raust.
Þau orðin lifa í manna minni,
mál og hugur var œðrulaust.
Hrein var tign yjir Auðar enni;
eldur sindraði brúnum frá,-
er lutu henni þau lítilmenni,
er líji manns hennar vildu ná.
Otal þvingunum Auður mœtti,
en ástvin brást ei á hættu stund.
Stór vœri gœfa, ef ísland œtti
alla niðja með liennar lund.
J
Frá Vestmannaeyjum
Ejtir Guðmundu Gunnarsdáttur
Ég hef hugsaö mér að fara hér nokkrum orðum
um félagsstarfsemi verkakvenna í Vestmanna-
eyjum, þar sem ritstjóri Melkorku hefur verið
oss svo velviljuð að ætla okkur rúm í blaðinu.
Verkakvennafélagið „Snót“, sem telur nú um
180 meðlimi, hefur undanfarið haldið uppi þrótt-
miklu innanfélagsstarfi, jafnhliða því, sem það
hefur staðið vörð um öll hagsmunamál vinnandi
kvenna út á við. Hefur félagið á því sviði unnið
þýðingarmikla sigra, með því að hafa náð við-
unanlegum samningum við helztu atvinnufyrir-
tækin í bænum, en þau eru í þessu sambandi
aðallega hraðfrystistöðvarnar.
Svo er og taxti félagsins jafnan greiddur hér
í annarri tímavinnu, er kvenfólk vinnur.
Um þessi mál ræðir formaður félagsins, Mar-
grét Sigurþórsdóttir í Vinnunni, tímariti A. S. I.,
4—5. tbl. þessa árs.
En verkakvennafélagið „Snót“ hefur ekki held-
ur verið iðjulaust á öðrum sviðum. Síðastliðinn
vetur gekkst félagið fyrir saumanámskeiðum, sem
voru mjög vel sótt, og báru ágætan árangur.
Nú heldur félagið áfram á þessari braut, og
fyrsta saumanámskeið komandi vetrar er í þann
veginn að hefjast, og mun aðsókn vera mjög
mikil.
Nú fyrir skömrnu réðst félagið svo í það að
kaupa spunavél, og hefur þegar ráðið starfsmann
í því sambandi. Hyggst félagið að láta vinna
fyrst og fremst fyrir þær félagskonur, er þess
óska, en sjálft hefur það keypt nokkuð af lopa,
og mun síðan selja fullunnið band, og ef til vill
eitthvað af prjónavörum. Þessi liður er alger
nýjung í félagsstarfseminni, og mun að sjálf-
sögðu útheimta alhnikið starf, en óneitanlega er
hér um verulegt hagsmunamál að ræða fyrir fé-
lagskonur, og hyggjum við allar gott til þessa.
Þess skal getið, að félagið er í Sambandi sunn-
lenzkra kvenna, og hefur notið styrks þaðan.
Verkakonur hér í Eyjum láta sig og miklu
skipta, hversu fram vindur um réttindamál kvenna
yfirleitt, og áttu þær fulltrúa á landsfundi kvenna,
sem haldinn var í júní síðastl.
Þær munu starfa ótrauðar að okkar sameigin-
lega takmarki, að fá viðurkennt fullkomið jafn-
rétti.
MELKORKA
71