Melkorka - 01.05.1945, Page 25
skolpvaskur er annars staðar í íbúðinni og
hvort sem er þari að vera sérstakur skolp-
eða hreinsunarvaskur í eldhúsinu, að öðrum
kosti ætti ekki að þvo upp í vaskinum.
Mynd 2 í Eldhúsið II sýnir uppþvottaborð
með tvöföldum vask og litlum skolpvask. í
litlu eldhúsi verða þrír vaskar nokkuð fyrir-
ferðarmiklir og því lientugra að hafa tvö-
faldan vask, eins og mynd 3 í Eldhúsið II
sýnir, þ. e. a. s. uppþvottavask og skolpvask
eða hreinsunarvask lilið við hlið. Þessari
tegund vaska er auðvelt að breyta í tvöfald-
an uppþvottavask með því að fella sérstak-
lega gerða skolskál úr ryðfríu stáli niður í
skolpvaskinn á rneðan þvegið er upp. Slíka
vaska og tilheyrandi skálar var farið að
framleiða í Svíþjóð 1942 og þóttu þeir gef-
ast mjög vel.
Á uppþvottastöð er þægilegt að liafa vír-
körfu (sjá mynd 4 Eldhúsið I) eða trégrind
til þess að raða leirnum í, og
má þá að nokkru leyti komast
hjá því að þurrka hann.
í skáp undir uppþvottaborði
á að vera hægt að koma fyr-
ir uppþvottaburstum, potta-
skrúbb, stálull, sápu, sóda,
helzt á rimla, og sorpfötu. Á
3. mynd Eldhúsið II er sorp-
fötunni komið fyrir á liillu
innan á skáphurðinni, en á
þann liátt verður þægilegra að
láta í hana (takið eftir lokinu).
Þar sem sorprenna er í húsum,
þarf að hafa útbúnað innan á
skáphurðinni svo að hægt sé
að festa þar bréfpoka til að
safna rusíinu í. Ef þvegið er
upp í bölum, verður að ætla
þeim rúm undir uppþvotta-
borðinu, og þar sem ekki er bekkur úr stáli
eða marmara þarf einnig að vera rúm íyrir
Itakka til þess að hvolfa leirnum í.
Skápar undir uppþvottaborði verða að
vera vel loftræstir. Eins og sjá má á mynd 4
Eldliúsið I eru rifur ofan til á hurðunum,
en til þess að hringrás verði á loftinu þurfa
einnig að vera göt neðan á skápnum og má
koma þeirn fyrir á botninum þar sem hann
gengur fram yfir undirstöðuna.
Eldunarstöð
Pottaskáp er oft hægt að koma fyrir sem
áframhaldi af uppþvottaborði, og bezt er að
liann sé einnig sem næst eldavél (mynd 4
Eldhúsið II). í litlum eldhúsum mun erfið-
ara að koma fyrir pottaskáp, eins og sýndur
er á mynd 5 Eldlnísið I, enda óþægilegt að
hafa enga flöt í svipaðri hæð og eldavélin,
þar sem hægt er að setja frá sér hluti meðan
unnið er við vélina.
Ylir eldavél eða til hliðar við hana á að
vera hilla eða grunnur skápur, þar sem
koma má fyrir salti, sykri, ]ripar, hveiti, kart-
öflumjöli, te, kakó, kaffi, sem sé þeirri þurr-
vöru, sem oftast er notuð beint á eldunar-
MELKORKA
21