Melkorka - 01.05.1945, Qupperneq 26

Melkorka - 01.05.1945, Qupperneq 26
stöð. Þar sem ekki er rafmagn eða gas verð- ur að vera staður fyrir eldivið nálægt eldun- arstöð (sjá eldiviðarskúffu Eldhúsið I). Ræstiskápur Á flestum heimilum vantar ennþá ein- livern samastað fyrir öll ræstiáhöld, en slík- ur skápur á að vera í eldhúsi eða í námunda við það. Mynd 5 og 6 Eldhúsið II sýna slíka skápa, annan með rúmi fyrir ryksugu, hinn með rúmi fyrir ,,straubretti“. Ljós á starísstöð Á iiverri starfsstöð um sig verður að vera þægileg birta, en á því er víðast hvar mjög rnikill misbrestur. Ljós í miðju lofti er mjög ófullnægjandi, því þá skyggja menn á sig er þeir vinna á hinum ýmsu starfsstöðvum, sem allar eru út við veggina. — Mynd 7 sýn- ir skakka lýsingu, mynd 8 rétta. Frh. i ncesla blaði. Reykholti—Hvítárbakka, 28,—81. marz. Einn dagur í heimavistarskóla í Englandi Eftir Jóhönnu Guðmundsdóttur Haustið 1929 innritaðist ég í Northfield- kvennaskólann í Watford í Hertfordshire. Skólinn stendur í ritjaðri bæjarins í um 17 mílna fjarlægð frá London. Northfield er einkaskóli. Eigendur lians eru systurnar Doris og Winifred Martin. Flestir enskir heimavistarkvennaskólar eru með mjög svipuðu sniði. Sex bekkir voru í skólanum, og voru þessar námsgreinar kenndar: enska, franska, latína, bókmennta- saga, saga, landalræði, eðlisfræði, stærðfræði, heilsufræði, grasafræði, dráttlist, söngur, handavinna, leikfimi og útileikir. Þær sem óskuðu eftir kennslu í píanóleik gátu fengið einkatíma tvisvar í viku. Sjöttubekkingar nutu sérstöðu í skólan- um að því leyti, að þær höfðu meira frjáls- ræði. Til dæmis máttu þær ráðstafa sjálfar tímanum frá 4.30 til kvöldverðar, sömuleið- is var ekki skipt sér af því, þótt þær hefðu ljós eftir tíu á kvöldin, sem hinir bekkirnir máttu ekki. Einkennisbúningur námsmeyja í North- field var grænn skokkur, ljósbrún blússa og grænn jakki. I brjóstvasanum á jakkan- um var saumað Northfield. Kjörorð skólans var: „By love serve“ (í þjónustu kærleik- ans). — Engin íslenzk stúlka hafði áður ver- ið í þessum skóla, enda varð ég brátt vör við að ísland var lítið þekkt í þessu um- hverfi. Spurningar skólasystra minna sögðu til um það. Síðla dags 25. sept. 1929 fór ég með lest- inni frá London til Junction járnbrantar- stöðvarinnar í Watford. Þar tók á móti mér ein af kennslukonum skólans og fórum við í bíl til Northfield. Skólinn hafði verið sett- ur tveim dögum áður, og voru því flestar námsmeyjar komnar. Mér var vísað á her- hergi það, er ég skykli liafa ásamt þrem öðr- um stúlkum. Þar sem komið var franr að þeim tíma, er te var drukkið, var mér bráð- lega vísað niður í borðstofuna. Tilkynnti skólastýran kennslukonunr og nemendum, að ég væri íslenzk, og mun ég seint gleyma þeim stóru augunr, er þær ráku upp. Ég hafði ekki gert mér í hugarlund að þjóðerni mitt nryndi vekja svona nrikla athygli, leið nrér óþægilega undir borðum og lrafði litla lyst á því, er fram var reitt. . Kennslu var lokið þennan dag og notaði 22 MELKORKA

x

Melkorka

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.