Melkorka - 01.05.1945, Síða 30

Melkorka - 01.05.1945, Síða 30
að nýsköpunin verður kák eitt, ef konur verða eigi kvaddar til þátttöku og samstarfs við karla um hin ýmsu vandamál. Ég veit, að kona, sem aldrei finnur sig vera ábyrg- an þjóðfélagsþegn, getur aldrei verið börn- um sínum sönn móðir í því að ala hjá þeim sterka þjóðerniskennd. Þar liggur í leyni liætta fyrir nýsköpunina. Fyrir nokkrum árum fór rnerkur maður hér á landi aðdáunarorðum um háttvísi og hæversku húsfreyju einnar hér í bæ, er hon- um virtist einna gleggst koma í ljós, þá er hún lagði ekkert til mála viðræðna hans og húsbóndans um landsins gagn og nauðsynj- ar. Eru íslenzkir karlmenn yfirleitt svo hé- gómagjarnir, að þeir vilji hafa konurnar sem þögula áhorfendur og áheyrendur? Því vil ég ekki trúa fyrr en í fulla hnefana. í fullri alvöru beini ég því til þeirra, sem fara með löggjöf og ríkisstjórn þessa lands, að þeir kveðji konur til opinberra starfa á sem víðustum vettvangi. Til þess hafa þeir ýms- ar opnar leiðír, t. d. með því að skipa konur í sem flestar opinberar nefndir. Hins vegar verða þá konurnar að taka í fullri alvöru þátt í nýsköpuninni og leggja Jrað alveg niður að telja sig ófærar til jojóðmálastarfa. Sú firra þarf að hverfa úr vitund allra ís- lenzkra kvenna, að Jrær hafi eigi aðrar skyld- ur að rækja við þjóðfélagið en að vera hús- freyjur og ntæður. Það ber að gera, en hitt eigi ógert að láta. Skyldurnar við land og þjóð eru eigi fullræktar með því. Allir ís- lenzkir menn, konur sem karlar, þurfa nú að duga vel og leggja sinn skerf fram til Jress, að þeir dýru draumar rætist, er alla Jrjóðina dreymdi vorið 1944. f-----------------------------X SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR frá MunaÖarnesi: HVÍTAR DÚFUR Húmbylgjur hníga hljóðlaust yfir jörð. Silfurhvit lognmóða lykur bláan fjörð. Engi og tún úðar nceturdögg. Þá hvíslar í lyngi út í húmblíða nótt. Lítill fugl, litið blómstur! svo hlýtt og svo hljótt. Syng þú fugl, sofna þú blóm. Yfir djúþin blá fljúga dúfur tvcer á hvítum vœngjum, livert vilja þœr? I lynginu voru liljur tvcer, og dúfurnar komu og kysstu þcer. 26 MELKORKA

x

Melkorka

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.