Melkorka - 01.05.1945, Síða 43
ar ættu að fylkja sér um, að byggðir verði
leikskólar víða um bæinn ásamt leikvöllum,
því að börnum er enginn ákveðinn staður
ætlaður í þeim íbúðum, sem byggðar hafa
verið hingað til.
Heimavistirnar ættu að vera fyrir utan
bæinn, og ættu þau liús að vera einlyft og
nóg rými bæði utan lnxss og innan, því að
börnum er mikil þörf á að geta notið frjáls-
ræðis úti undir beru lofti.“
„Haldið þér, að almenningi sé Ijós þörf-
in á þessari starfsemi?“
„Ég held, að sá skilningur hafi aukizt til
mikilla muna á síðustu árum. Húsmæðrun-
um er að verða það fullljóst, að börnin
þarfnast dagskóla og þær sjálfar hvíldar frá
þeim þrotlausa erli, sem barngæzlunni
fylgir. Það er auðséð, að börnum er ólíkt
heilnæmara og betra að verja dagstundun-
um í leik með jafnöldrum sínum á stöðum,
þar sem leikskilyrði eru góð og eftirlit sæmi-
legt, en að vera liornreka á heimilum, sem
miðuð eru við þarfir og hæfi fullorðna
fólksins. Annars er mönnum ekki nógu
Ijóst, að munurinn á dagheimili og leik-
skóla er enginn annar en sá, að börnin
dvelja skemur á þeim síðartalda og fá þar
engar máltíðir. Að mínu áliti þarf fremur
að fjölga leikskólum en dagheimilum. Börn-
in þurfa að vísu að fá tækifæri til að kynn-
ast og læra að umgangast, en þó held ég, að
þeim muni vera fullerfitt að vera allan dag-
Einn af yngstu kynslóÖinni
MELKORKA
39