Valsblaðið - 01.05.1998, Qupperneq 12

Valsblaðið - 01.05.1998, Qupperneq 12
Texti: Þorlákur Árnason Liðsstiórinn voru að leiknum. Það virðist enn þá vera einhver spenna milli félaganna eftir leikina í úrslitum bikars og í Islandsmótinu. Jóhann Birgisson er búinn að vera liðsstjóri hjá handknattleiksdeild Vals í fjöldamörg ár. Jói sem oft hefur verið bendlaður við mafíuna á Sikiley var í Jæri" hjá Pétri Guðmundssyni áður en hann tók endanlega við liðsstjórastarfinu. Jóhann er skemmtilegur persónuleiki og harður Valsmaður sem hefur skoðanir á flestum hlutum varðandi félagið. Hér á eftir fylgir frásögn Jó- hanns af atburðum að Hlíðarenda: Hvenær kynntist þú fyrst Knatt- spyrnufélaginu Val, Jóhann? Ég æfði í yngri flokkunum hjá Val. Ég bjó bæði á Egilsgötunni og í Máva- hlíðinni sem krakki þannig að Hlíðarendi var í næsta nágrenni. í þá daga voru nær allir í fótbolta og helstu leikfélagarnir voru meðal annars þeir Hermann Gunnarsson og Ingvar Elíasson. Hefur mikið breyst síðan þá? Það ótrúlega er að aðstaðan hefur lítið batnað í knattspymunni síðan þá, en að sjálfsögðu hefur orðið bylting fyrir handboltann og körfuboltann. Það eru mjög fáir sparkvellir til að spila á í dag og oft finnst mér eins og grassvæðið okkar sé til allra hluta nýtt nema að spila á því! í gamla daga vorum við alltaf á Klambratúninu og á leikvelli meðfram flugvellinum. Á þessum tíma var Róbert Jónsson þjálfari aðal- maðurinn að Hlíðarenda og hann gerði það eftirsóknarvert að koma á svæðið. Róbert hafði gífurleg áhrif á líf ungra knattspyrnumanna á sínum tíma. Hvað með eftirminnilega leiki? Hvað með eftirminnilega leikmenn? Gamla .mulingsvélin" í heild sinni var mjög athyglisverð, þeir stóðu saman og skipulögðu leik sinn bæði innan vallar sem utan. Einnig er gaman að fylgjast með þeim ungu leikmönnum sem eru að koma upp hjá Val hverju sinni. Valur skipar ákveðna sérstöðu í þessum málum enda höfum við verið óhræddir við að gefa ungum og efnilegum leik- mönnum tækifæri. Það er endalaus upp- spretta af leikmönnum hjá okkur enda verðum við að byggja lið okkar á heimamönnum og undirbúa þá leik- menn sem eiga að taka við þeim eldri. Þú talar um sérstöðu Vals í uppbygg- ingu, hvaðan kemur þessi hug- myndafræði? Áhrifin koma um leið og Boris Akbachev kom til Vals upp úr 1980. Hann byrjaði á því að gefa hálfri „mul- ingsvélinni11 frí strax og það varð til þess að menn efuðust mikið um störf hans 02 Boris fór út aftur til Rússlands. Jóhann Birgisson hinn öflugi liðsstjóri mfl. karla í handknattleik. í minningunni verður oft sá síðasti minnistæðastur og þannig er það einnig með mig enda er bikarúrslitaleikurinn frá því í fyrra gegn Fram sá allra eftir- minnilegasti. Leikurinn var æsispenn- andi auk þess sem miklir eftirmálar Jóhann ásamt fyrirliðanum Guðmundi og aðstoðarþjálfaranum Boris Bjarna fagna íslandsmeistaratitlinum í vor. 12 Valsblaðið 50 ára

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.