Valsblaðið - 01.05.1998, Page 15

Valsblaðið - 01.05.1998, Page 15
Islenskar getraunir Knattspyrnufélagið Valur hefur undanfarin ár aflað þó nokkurra tekna með sölu á getraunaseðlum. Heldur hefur salan dregist saman því að á árunum 1995-1996 voru tekjur Vals af getraunasölu rúmar 4.5 milljónir og var Valur þá lang sölu- hæsta félagið með um 11% af allri sölu, á árunum 1996-1997 var Valur með rúmar 4,2 milljónir í tekjur en 1997-1998 féllu tekjurnar niður í rúmar 1,6 milljónir. A þessum tölum sést hvaða möguleikar felast í sölu getraunaseðla með því að hafa stórtæka tippara eða hópa sem sameinast um að tippa, hjá félaginu. Félagið hefur reynt að auka söluna aftur með ýmsum hætti, t.d. var haustið 1997 settur á stofn Húspottur Vals og Vals- mönum boðið að gerast fastir áskrif- endur að pottinum eða bara að koma á laugardagsmorgnum og kaupa hlut, en hver hlutur kostar 1000 kr. Þeir sem voru fastir áskrifendur síðastliðinn vetur komu út með hagnaði eftir vet- urinn, en því mið- ur eru þeir allt of fáir, en þeim eru færðar bestu þakk- ir fyrir sinn fasta stuðning. Félagið hefur auk þess boðið uppá kaffi og meðlæti á laugardögum en af einhverj- um ástæðum sjá aðeins fáir Valsmenn sér fært að koma, tippa og fá sér kaffi. Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á fyrstu útgáfu af nýju sölu- kerfi Islenskra getrauna og fer það fram á Inter- netinu. Þetta kost- ar það að Valur þarf að fjárfesta í nýjum tölvubú- naði og láta setja upp ISDN teng- ingar í félags- heimilinu. Þetta nýja kerfi býður uppá miklu meiri möguleika t.d. Lengjan, Euro- goals og fleira. En þetta hefur engan tilgang ef áhugi félagsmanna er ekki meiri en í dag. Við þurfum að virkja þessa tekjulind miklu betur, spuming er hvort opnunartíminn er ekki hentugur, þarf að vera opið á kvöldin t.d. á föstudagskvöldum og jafnvel vera með léttar veitingar til að trekkja menn að? Við þurfum að virkja þessa tekjulind miklu betur Fastur kjarni Valsmanna mætir alltaf í tippið á laugar- dögum en þeir mættu vera miklu fleiri. Til heiðurs sigur- vegurum félagsins Minjanefnd Vals hefur ákveðið að standa fyrir því að láta útbúa ljós- myndir af öllum þeim meist- araflokkum félagsins sem orðið hafa Islandsmeistarar í sinni grein. Þetta er metnaðarfullt og ærið starf því titlarnir eru margir og unnir frá árinu 1930 til ársins 1998. Ákveðið hefur verið að samræma stærð myndanna og hafa þær allar í eins ramma. Fyrstu sjö myndimar vom hengdar upp í félagsheimilinu nú í nóvember en stefnt er að því að þær verði allar komnar upp á árinu 2000. Endanleg staðsetning þeirra hefur ekki verið ákveðin en fyrst um sinn verða þær í félagsheimilinu nýja. Árið 2000 er svolítið merkilegt hvað varðar íslandsmeistaratitla Vals því þá verða 70 ár frá því félagið varð fyrst íslandsmeistari í mfl. karla í knattspymu, 60 ár frá því að hand- knattleiksmenn urðu fyrst íslands- meistarar og 20 ár frá því að Valur varð fyrst Islandsmeistari í körfu- knattleik. Valsblaðið 50 ára 15

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.