Valsblaðið - 01.05.1998, Side 27

Valsblaðið - 01.05.1998, Side 27
Jakobsson, þjálfari okkar í 3. flokki, oftast upp í hugann. Hann var fyrrum leikmaður Vals, sérstakur persónuleiki og markaði ákveðin spor í hugarheim okkar með framkomu sinni og þjálfu- naraðferðum. Við höfðum engu sér- stöku liði á að skipa en hann náði að skapa það góða stemmningu að við náðum mun betri árangri en nokkum óraði fyrir." Meðal þeirra sem voru samferða Elíasi á knattspyrnuferlinum má nefna Ormar Skeggjason, Arna Njálsson, Björgvin Hermannsson, Björgvin Daníelsson og Þorsteinn Friðjófsson. Síðar komu Hermann Gunnarsson og hans kynslóð inn í liðið. Ætli Elíasi finnist gríðarlega mikill munur á knattspymunni í dag og þegar hann var upp á sitt besta. „Áður léku menn fyrst og fremst ánægjunnar vegna, það var æft sjaldnar og það segir sig sjálft að við vomm ekki nærri eins teknískir og leikmenn í dag. Þá var alltaf spilað á möl og það setti mark sitt á leikinn. Ef ég horfi nær í tíma, t.d. í sambandi við þær ferðir sem ég hef farið með liðum til útlanda, ýmist sem leikmaður eða stjómarmaður, er mikill munur á gamla tímanum og því sem tíðkast í dag. Áður fóm menn sjaldan til útlanda og þá voru keppnisferðir líka skemmtiferðir. Hin síðari ár þarf engar áhyggjur að hafa af leikmönnum. Þeir vita sjálfir að ef þeir standa sig ekki detta þeir úr liðinu. Allt eftirlit með leikmönnum í keppnisferð- um er óþarft." -- Telurðu að of háar peningagreiðs- lur til leikmanna fari illa með þá? „Maður kemur náttúrlega úr allt öðm umhverfi en þessir strákar í dag og áður léku menn meira með hjartanu. Mér fannst ég alltaf standa í þakkarskuld við félagið fyrir að fá að æfa og leika með liðinu en núna hugsa flestir hvað félag- ið geti gert fyrir þá. Því fer fjarri að leikmenn séu að sýna að þeir séu pen- inganna virði. Vissulega eru menn mis- jafnir en ég tel að leikmenn ættu fyrst að sanna sig, síðan að spyrja hvað þeir fái fyrir vikið. Félög em oft að kaupa köttinn í sekknum því yfirleitt em það sterkir persónuleikar sem nýtast fél- ögum best - ekki endilega þeir sem em flinkastir með boltann. Þetta hefur margsýnt sig. Það er engin tilviljun hvers vegna sum félög verða íslands- meistarar en önnur ekki. Ef menn skoða sigurliðin grannt kemur í ljós að lykil- menn þeirra em sterkir persónuleikar sem skipta sköpum og hvetja aðra til dáða." -- Finnst þér að gömlu félagar þínir og jafnvel næsta kynslóð á eftir hafa skilað sér nægilega vel inn í félags- og stjórnunarstarfíð hjá Val ? „Það eru alltof fáir sem hafa fengist til starfa. Ég veit ekki hvort félagið sem slíkt sé ekki nógu öflugt að draga menn inn í starfið með einum eða öðmm hætti eða hvort fyrrum leikmenn séu hrein- lega áhugalausir. Mér hefur alltaf þótt sjálfsagt að leggja Val lið og þess vegna gaf ég mig í stjórnunarstarfið. Það er öllum félögum mikill akkur ef fyrrum keppnismenn fást til að starfa því þeir þekkja sviðið betur en þeir sem hafa aldrei komið nálægt knattspymuiðkun. Auðvitað getur líka verið gott að fá fríska og kraftmikla aðila til starfa þótt - Hver er þín skoðun á félagsstarfínu hjá Val? „Mér finnst menn hafa verið að gera mjög góða hluti hvað varðar félags- aðstöðuna, byggingu íþróttahússins og fleira. Ákveðinn kjami manna vann mikið sjálfboðaliðsstarf en líklega gæti félagsstarfið verið enn öflugra ef fleiri fengjust til að vinna fyrir Val. Starfið rnæðir of mikið á fáum einstaklingum. Yfirleitt er góð aðsókn á þær uppá- komur sem eru fyrir hendi, hvort sem það heitir herrakvöld Vals eða Þrett- ándabrenna. Það er bara svo margt sem freistar fólks í dag sem var ekki til staðar áður. Núna getur fólk valið um tugi sjónvarpsstöðva, fjölbreytt afþrey- ing er í boð allsstaðar og svo mætti lengi telja. Samkeppni um hylli fólks er gríðarleg." - Finnst þér eitthvert eitt verkefni öðru brýnna á Hlíðarenda? „Það væri virkilega skemmtilegt ef hægt væri að koma upp almennilegri stúku. Það yrði mikil andlitslyfting og myndi án efa trekkja að fleiri áhorf- endur. Ekkert íþróttasvæði í Reykjavík býður upp á meiri möguleika en Hlíða- bakgrunnur þeirra sé allt annar." rendi, þannig að segja má að framtíðin Aðalstjórn Vals 1980-1987 ásamt gestum á árlegu þorrablóti Péturs for- manns. Efri röð frá vinstri: Hrólfur Jónsson, Ingi Björn Albertsson, Bjarni Bjarnason, Þorsteinn Haralds, Halldór Einarsson. Fremri röð f.v. Sigurður Lárus Hólm, Pétur Sveinbjörnsson, Elías Hergeirsson Grímur Sæmundsen, á myndina vantar Jafet Ólafsson. Ljósmyndari Ólafur Gústafsson Valsblaðið 50 ára 27

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.