Valsblaðið - 01.05.1998, Blaðsíða 36

Valsblaðið - 01.05.1998, Blaðsíða 36
Bygging íþróttahúss C/'V \JaLaL>La%a/ Á lj-% á^Vhóei/s \já£/l Snemma á árinu 1953 var ákveðið að hefjast handa um byggingu íþróttahúss, þar sem fram gætu farið knattspymu- æfingar að vetrinum til, svo og hand- knattleiksæfingar, í eigin húsnæði. Að afloknum nauðsynlegum undirbúningi var vinna hafin við þetta mannvirki í apríl 1954. íþróttasalurinn er 32x16 metrar að flatarmáli, með viðbyggðum búningsherbergjum um 6,5 metra breiðum meðfram allri hliðinni suðvest- anverðri. íþróttaskálinn er stálgrinda- hús, 8 súlur hvorum megin, gaflar báðir uppsteyptir svo og norðausturhlið, en hlaðin milli salar og búningherbergja. Stofngrindin er keypt fyrir milligöngu Landssmiðjunnar og veittu verkstjórar þaðan, þeir Guðmundur Arason, Gunnar Brynjólfsson og Markús Guð- jónsson mikilvæga aðstoð við uppsetn- ingu hennar. Vegghæð íþróttasalar er rúmir 6,5 metrar og mesta hæð um 8,5 metrar, og samanlagt er byggingin að meðtöldum búningsherbergjum hátt á fimmta þúsund rúmmetrar. Verkinu skilaði það vel áfram, að hvort tveggja var fokhelt snemma árs 1955. Lagði félagið fram allmikla sjálf- boðavinnu. Skarphéðinn Jóhannsson arkitekt teiknaði bygginguna og hafði eftirlit með framkvæmdum, Hann hefur og gert teikningu af áföstu félagsheim- ili að norðanverðu við íþróttaskálann, sem fyrirhuguð er að reisa síðar. Umsjón með múrverki og trésmíði höfðu þeir bræður Jón og Magnús Bergsteinssynir. Formaður Hlíðarenda- nefndar er Ulfar Þórðarson læknir, og ásamt honum í nefndinni þeir Jóhannes Bergsteinsson. Sigurður Ólafsson, Andrés Bergman, Bragi Kristjánsson, Hrólfur Benediktsson og Ólafur Sigurðsson. Á næstu vikum verður hafist handa um innréttingu salar og búningsherbergja, Er það mikið verk og kostnaðarsamt, Eru félagsmenn hvattir til þess að legg- ja fram fram krafta sína nefndinni til aðstoðar og stuðla þar með að því að húsið verði sem fyrst tekið í notkun, en á því er mikil og vaxandi þörf. Félagið hefur notið styrks til framkvæmdanna úr íþróttasjóði og frá bæjarsjóði Reykjavikur og ber að þakka hann Gamla íþróttahúsið í byggingu Eldri Vals- blöð:1971 Viðtal við Hilmar Sighvatsson: Hilmar hafði þetta að segja um veru sína í Val og helstu min- nistæð atvik: Eg byrjaði að æfa knattspymu árið 1969. Ég fór í Val vegna þess að vinur minn hélt með Val og þá fór ég að fara þangað á æfingar. Ég hætti nú aftur í tvo mánuði en tók svo til við að æfa á ný og hef síðan æft af kappi. Ég var heppinn að komast beint í A-liðið í 5. flokki, og fyrsta leikinn lék ég með- Val í Reykja- víkurmótinu 1969. Ég man nú ekki hvernig leikurinn fór, en ég man það að ég var mikið taugaóstyrkur, ég var líka svo mikill klaufi þá. En svo kom þetta með því að æfa stöðugt. Ég var framvörður og skoraði ekkert mark fyrsta árið. Svo fór þetta nú að koma og í ár skoraði ég 8 mörk. Sá leikur, sem mér er minnistæð- astur er úrslitaleikurinn við KR í haust, en þá unnum við 1:0. Urðum við ofsalega glaðir, þegar sigur- markið var skorað. Okkur hefur víst fundið það sæt hefnd, því við töp- uðum með eins marks mun fyrir þeim á Islandsmótinu, eða 2:1. Brot úr viðtali við Hilmar Sig- hvatsson leikmann 5.flokks karla árið 1971. Sonur Hilmars, Torfí Geir Hilmarsson var einmitt valinn leikmaður ársins í 5. flokki karla í haust, 27 árum síðar. Það verður fróðlegt að fylgjast með honum í framtíðinni. 36 Valsblaðið 50 ára

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.