Valsblaðið - 01.05.1998, Side 47

Valsblaðið - 01.05.1998, Side 47
Handknatt- leiksdeild Vals á nýrri öld Eins og flestum er kunnugt þá hafa handboltamenn okkar Valsmanna verið gífurlega sigursælir undanfarin ár. Félagsmenn jafnt sem andstæðingar hafa undrast mjög árangur okkar, ekki síst vegna þess að leikmannakaup hafa lítið verið stunduð. Á sama tíma hefur félagið þurft að þola mikinn leikmanna- missi ár eftir ár. Tekist hefur að ala upp nýja leikmenn, sem hafa stöðugt fyllt í skörðin. Er nú svo komið að mikið er talað um „Vals- aðferðina“ eftir frækilega frammistöðu félagsins á síðasta keppnistímabili. En betur má ef duga skal. Enginn lifir á fomri frægð og stöðugt þarf að horfa til framtíðar, öflugt unglingastarf er sú líf- æð sem áframhaldandi velgengni bygg- ist á. En erfitt verður að halda starf- seminni úti við óbreyttar aðstæður. Starfið hefur verið borið uppi af mjög fáum en jafnframt mjög hæfum einstak- lingum sem eiga ómældar þakkir skilið fyrir einstakt starf og samkeppnin um ungviðið verður sífellt meiri. Núver- andi fjárhagsgrunnur getur ekki upp- fyllt þessi skilyrð á fullnægjandi hátt. Æfingagjöld standa ekki undir lág- markskostnaði. Átaksverkefnið „Handknattleiksdeild Vals á nýrri öld“ er ætlað að brúa bilið sem upp á vantar. Unglingaráð handknattleiksdeildar hefur fengið til liðs við sig fjóra hópa af styrktaraðilum sem allir hafa sterk tengsl við félagið. Hér er á ferðinni skemmtileg blanda af fyrirtækjum og tveimur hópum félagsmanna, sem segja Einn besti handknattleiksmaður heims Ólafur Stefánsson skrifar undir styrktarsamninginn. má að standi fyrir fortíð og nútíð félagsins hvor á sinn hátt. Þessir aðilar eru: 1. Mulningsvélin 2. Útherjar (atvinnumenn Vals í handknattleik á hverjum tíma) 3. Eignasalan Húsakaup 4. GLV Teppabúðin, Örninn hjól, Sólning hf og Húsvirki. Þessir aðilar hafa gert styrktarsamning við handknattleiksdeildina til næstu fjögurra ára og eru þeim færðar hinar bestu þakkir fyrir þetta lofsamlega framtak. Þetta gerir deildinni kleift að ráða 2 þjálfara í fullt starf til að skipu- leggja og stjórna unglingastarfinu. Unglingastarf handknattleiksdeildar Vals skal sinna öllum einstaklingum sem vilja æfa undir merkjum Vals með hag þeirra að leiðarljósi jafnframt því að ala upp hæfileikaríka og þroskaða handknattleiksmenn og konur, sem munu bera uppi meistaralið félagsins á nýrri öld. Frá blaðamannafundi þar sem átaksverkefnið „Handknattleiksdeild Vals á nýrri öld“ var kynnt. Valsblaðið 50 ára 47

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.