Valsblaðið - 01.05.2006, Page 7
Starfið er margt
Glœsileg mannvirki að rísa. Ný tengibygging og 1500 manna stúka við nýjan vœnt-
anlegan aðalkeppnisvöll að Hlíðarenda. Mynd tekin um miðjan desember 2006.
má gleyma Sverri Traustasyni sem enn
sinnir húsvarðarstörfum og yngist með
hverju árinu sem líður. Öllu þessu fólki
eru þökkuð vel unnin störf fyrir Val.
Uppbygging að Hiíðarenda
Framkvæmdir við ný íþróttamannvirki að
Hlíðarenda hófust snemmsumars á síð-
asta ári og hafa Valsmenn séð mannvirk-
in taka á sig mynd á þeim tíma sem síðan
er liðinn. Eru þau stórglæsileg. Ákveðið
hefur verið að vígja nýja íþróttahúsið og
tengibyggingu á 96 ára afmæli Vals 11.
maí nk. og gert er ráð fyrir að afreksmenn
og afrekskonur Vals spili fyrir fullri stúku
Valsmanna á nýjum aðalkeppnisvelli að
Hlíðarenda um mitt næsta sumar. Keppn-
isvöllurinn verður vandaðasta mannvirki
sinnar tegundar á íslandi. Hann verður
upphitaður með vökvunarkerfi og yfir-
breiðslu. Þetta kerfi á að auka nýting-
arhæfni auk þess að gera kleift að nýta
völlinn fyrr á vorin og síðar á haustin en
hingað til hefur verið unnt. Nýjar gras-
flatir til knattspymuæfinga voru teknar í
notkun um mitt síðastliðið sumar en flat-
imar samsvara tveimur knattspymuvöll-
um í fullri stærð til æfinga og keppni. Þá
bætist við einn knattspymuvöllur til við-
bótar vestar í mýrinni sem tekinn verður
í notkun sumarið 2008.
Framkvæmdatími hefur reynst aðeins
lengri en menn vonuðust til þannig að
iðkendur handknattleiks og körfuknatt-
leiks í félaginu hafa áfram þurft að
þreyja þorrann í útlegð í Laugardalshöll
og íþróttahúsi KHÍ í vetur, en því meiri
er tilhlökkunin að njóta þeirrar frábæm
aðstöðu sem verður að vemleika að
Hlíðarenda á næstu leiktíð og í allri
framtíð.
Hinn 4. apríl sl. var skrifað undir þrí-
hliða samkomulag Reykjavíkurborgar,
Vals og Valsmanna hf. um framkvæmdir í
Vatnsmýri og jafnframt var skrifað undir
samning milli Vals og Reykjavíkurborgar
um byggingu knatthúss að Hlíðarenda. Er
stefnt að því að taka fyrstu skóflustungu
að nýju knatthúsi 11. maí nk. Knatthúsið
mun liggja samsíða aðalkeppnisvelli
félagsins gegnt íþróttahúsinu og stúku
þess og verður önnur stúka fyrir keppn-
isvöllinn sambyggð knatthúsinu. Verða
þá sæti fyrir 3000 manns að Hlíðarenda
og völlurinn sannarlega glæsilegasti
keppnisvöllur félagsliðs á íslandi í knatt-
spymu. Gert er ráð fyrir að framkvæmd-
um við knatthúsið ljúki vorið 2008, en
það verður með 12 m lofthæð, óhitað og
svipaðrar gerðar og knatthús sem nýlega
var tekið í notkun á Akranesi.
Þegar þessum framkvæmdum verður
öllum lokið verður aðstaða að Hlíðarenda
til iðkunar knattspyrnu, handknattleiks
og körfuknattleiks með því besta sem
gerist á Islandi.
Undanfarin tvö ár hafa verið erfið
fyrir iðkendur, stjómendur félagsins og
aðra félagsmenn vegna þess aðstöðu-
leysis sem óneitanlega hefur fylgt mikl-
um framkvæmdum á félagssvæðinu að
Hlíðarenda. En öll él styttir upp um síðir
og munu Valsmenn njóta ávaxta þraut-
seigju sinnar ríkulega.
Hefðbundið starf
Frammistaða meistaraflokks kvenna í
knattspymu stendur upp úr í afreksstarfi
Vals á þessu ári og prýða stúlkurnar for-
síðu Valsblaðsins að þessu sinni. Þær
urðu íslands- og bikarmeistarar með
glæsibrag. Ekki er á neinn hallað þó
að nefnd sé frábær frammistaða Mar-
grétar Láru Viðarsdóttur sem varð lang-
markahæst í úrvalsdeildinni og kórónaði
frammistöðu sína með þremur mörkum í
úrslitaleik bikarsins gegn Breiðabliki.
Að venju var íþróttamaður Vals valinn
á gamlársdag. Bjarni Ólafur Eiríksson,
bakvörður meistaraflokks karla í knatt-
spyrnu, fékk heiðurstitilinn „fþróttamaður
Vals árið 2005“ en hann átti frábært
keppnistímabil í bikarmeistaraliði Vals.
Bjarni Ólafur fór í atvinnumennsku til
Silkeborgar í Danmörku fyrir þessa leik-
tíð og hefur staðið sig vel.