Valsblaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 8
Stoltir félagar í nýju stúkunni að Hlíðarenda með heiðursorðu Vals sem þeir voru sæmdir á afmælishátíðinni 11. maí 2006.
Frá vinstri: Reynir Vignir fyrrverandi formaður Vals 1994-2002. Grímur Sæmundsen formaður Vals og Hörður Gunnarsson
varaformaöur. Reynir Vignir kvaðst ánægður með að fá þessa viðurkenningu og vera þar með kominn í hóp með mörgum
mætum Valsmönnum sem fengið hafa orðuna á undanförnum áratugum fyrir störf sín fyrir félagið. Hann segist að sjálfsögðu
verða eins og aðrir í þeim hópi reiðubúinn að vinna næsta verk sem fellur til fyrir Val. Hörður Gunnarsson sagði einnig að
það væri sér mikil ánægja og mikill heiður að hafa verið sæmdur heiðursorðu Knattspyrnufélagsins Vals og vera þar með
kominn í hóp með bestu og virtustu sonum þessa félags. „Mér þykir mjög vænt um þessa viðurkenningu sem og aðrar sem
félagið hefur sæmt mig á þeim 18 árum sem ég hef setið í stjórnum á vegurn Vals. Það er uppörvun fyrir alla að fá viðurkenn-
ingu fyrir störf sín þó það sé í mínu tilfelli ekki takmark eitt og sér. Miklu meira er um vert að geta litiö um öxl og séö aö
störfin sem innt liafa verið af hendi fyrir Val hafi kornið félaginu og æsku borgarinnar að einhverjum notum. Eins og gefur
að skilja hef ég yfirleitt haft ánægju af stöfum mínum fyrir Val í gegnum árin þó á því hafi verið undantekningar sérstaklega
á því tímabili í sögu félagsins þar sem illa gekk innan vallar og fjárhagsstaða okkar var döpur. A því tímabili fannst ntér ekki
sæntandi sönnum Valsmanni að gefast upp og hverfa á braut. Síðustu 5 ár eða svo hafa verið mjög spennandi og gefandi t'yrir
stjórnendur félagsins enda hefur á þeim tíma verið lagður grunnur að glæstri framtíð og uppbyggingu Vals sem fyrst og síðast
byggist á stórhuga framtíðarsýn og breyttri landnýtingu á lóðum félagsins. Valur hefur veitt mér það mikla ánægju í gegnum
árin að ntér finnst að félagið eigi vinnuframlag mitt inni. Það er að verða mun erfiðara að fá fólk til starfa í félagsstörfum en
ég hvet fólk til að koma og taka þátt í starfi Vals með einhverju móti, því það er víða hægt að bera niður þó að menn sitji ekki
í stjórnum. Það eru spennandi tímar framundan og glæsileg aðstaða þannig að allir eiga að geta fengið ánægju út úr störfum
innan Vals og í leiðinni er verið að vinna að forvarnarstarfi fyrir æsku borgarinnar og það er ærið verkefni," sagði Hörður.
Vorgleði Vals var ekki haldin að þessu
sinni vegna aðstöðuleysis og verður
ekki heldur í vor. Það er þess meira til-
hlökkunarefni að halda hana þegar nýja
íþróttahúsið verður komið í notkun.
Vorgleðin tókst frábærlega vel í þau tvö
skipti sem hún hefur verið haldin og fest-
ir sig vonandi í sessi sem ómissandi þátt-
ur í félagsstarfinu.
95 ára afmæli Vals var haldið hátíðlegt
hinn 11. maí síðastliðinn. Dagurinn hófst
að venju með samverustund við styttu
séra Friðriks að Hlíðarenda en síðdegis
var afmælishóf í veitingasal íþrótta- og
sýningarhallarinnar í Laugardal. Við það
tækifæri var hópur Valsmanna sæmdur
silfurmerki og gullmerki félagsins auk
þess sem þrír Valsmenn voru sæmdir
Valsorðunni, en hún er æðsta viðurkenn-
ing félagsins utan heiðursfélaganafnbót-
ar. Þetta voru þeir Grímur Sæmundsen,
formaður Vals, Hörður Gunnarsson,
varaformaður Vals og Reynir Vignir fyrr-
verandi formaður Vals, en þessir herrar
hafa verið í forystu nýrrar uppbygg-
8
Valsblaðið 2006