Valsblaðið - 01.05.2006, Síða 20
Dreymir um að komast á StÓPfflÓt
með kvennalandsliðinu
Margrét J.ára 1/iQarsdóttir var valin besti Jeikmaður meistaraflokks kvenna í
sumar. Hun er tvitug komin til Þyskalands i atvinnumennsku
Margrét Lára Viðarsdóttir hefur und-
anfarin tvö ár leikið með meistaraflokki
kvenna í knattspymu hjá Val og hefur á
þeim tíma þroskast mikið sem leikmaður.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún verið
fastamaður í landsliðinu undanfarin ár og
leikið í mörg ár í efstu deild hér á landi,
fyrst með ÍBV og síðan með Val. Margrét
er mikill markaskorari og var nú í sumar
langmarkahæsti leikmaður íslandsmóts-
ins, skoraði 34 mörk í 13 leikjum. Á
lokahófi KSÍ var Margrét síðan kjör-
in besti leikmaður Islandsmótsins og
er hún svo sannarlega vel að þeim titli
komin. Um það kjör hafði Margrét þetta
að segja: „Mér leið alveg frábærlega vel
og er eiginlega ekki hægt að útskýra það
með orðum. Fyrir mér vom þetta laun
erfiðisins því ég hef lagt mikið á mig
undanfarin ár. Það er auðvelt að vera
efnilegur en erfitt að verða bestur. Því
var þetta mikill sigur fyrir mig að nú væri
ég ekki lengur efnileg heldur góð þótt ég
sé aðeins tvítug. Ekki má gleyma því að
samherjar mínir og þjálfari eiga stóran
hluta í þessum verðlaunum því án þeirra
hefði ég aldrei getað unnið þetta,“ segir
Margrét af hógværð en ákaflega stolt.
Fyrir skömmu gerði Margrét Lára
samning við þýska stórliðið FCR
Duisburg og er hún þegar farin að
æfa og leika með liðinu. Hún lítur á
Duisburg sem stökkpall að einhverju
enn þá betra, hvort heldur í Þýskalandi,
á Norðurlöndunum eða í Bandaríkjunum.
„Ég ætla að taka lítil skref í einu því það
tekur tíma að sanna sig héma og venjast
fótboltanum í Þýskalandi. Þetta er allt
Margrét Lára Viðarsdóttir ásamt forráðamönnum Duisburg í Þýskalandi í október 2006.
riM»ui sb0l
Vidarsdottir
annað en á Islandi og því mun ég gefa
mér góðan tíma til að aðlagast. Mig lang-
ar að ná enn lengra og ég trúi því að ég
geti það," segir Margrét mjög ákveðið og
fylgir hverju orði eftir af miklum þunga.
Uppalin í Vestmannaeyjum
Margréti Láru fannst yndislegt að alast
upp í Vestmannaeyjum enda þar mikið
lagt upp úr íþróttum. Hún segist hafa
verið í handbolta, fótbolta, frjálsum
íþróttum og dansi alla sína æsku og þess
á milli var hún með vinum sínum á malar-
vellinum í fótbolta eða í hverfaleikjum á
kvöldin. Einnig þótti henni mjög gaman
að fara á hestbak hjá afa sínum. Hún seg-
ist eiga frábæra fjölskyldu sem hafi alltaf
stutt vel við bakið á sér og hvatt sig og
leiðbeint og að hún eigi mikið fjölskyld-
unni að þakka. Hún segir einnig að ekki
hafi verið erfitt að velja á milli fótbolta
og handbolta, en hún var valin í ungl-
ingalandsliðið í báðum íþróttagreinum á
sínum tíma. „Hver veit nema ég taki fram
handboltaskóna seinna," segir Margrét
kímin.
Fæddist með boltann á tánum
„Ég held að ég hafi fæðst með boltann á
tánum því ég man ekki eftir mér án bolta.
Báðir bræður mínir og pabbi voru í bolt-
anum svo að áhuginn kom af sjálfu sér.
Ég byrjaði að æfa fimm ára með strákum
og ári seinna var ég með stelpunum í 5.
flokki því á þessum tíma var ekki 6., 7.
eða 8. flokkur. Það var hart barist í fót-
bolta í frímínútunum og ég man að strák-
arnir létu mig finna vel fyrir því þegar ég
sólaði þá,“ segir Margrét.
Líf og fjöp á Pæjumótum í Eyjum
„Við stelpumar í IBV vomm alltaf mjög
sigursælar og unnum öll okkar Pæjumót
og fengum mörg einstaklingsverðlaun og
Valsblaðið 2006