Valsblaðið - 01.05.2006, Page 22
Unpskrift að góðum árangri
liosheildar
„Ég held að ein helsta ástæðan fyrir frá-
bærum árangri Valsliðsins undanfarin ár
sé andinn í hópnum. Hann er frábær. Við
erum ótrúlega góðar vinkonur og leysum
öll vandamal strax í byrjun. Við erum
líka vel spilandi lið með frábæra leik-
menn. Síðan má ekki gleyma hausnum
á liðinu, en það er Beta, hún hefur gert
ótrúlega mikið fyrir þennan hóp bæði
á æfingum og utan þeirra. Hún er að
mínu mati þjálfari á heimsmælikvarða
með frábærar æfingar sem skila sér svo
sannarlega. Við vorum ekki með bestu
leikmennina í öllum stöðum í sumar, en
klárlega besta liðið. Leikmenn lögðu hart
að sér allt undirbúningstímabilið og upp-
skeran var í samræmi við það. Með góðri
þjálfun og vilja kláruðum við þetta með
stælsegir Margrét ákveðið.
Margrét segir að Elísabet Gunnarsdóttir
þjálfari hafi mjög mikinn metnað og
gríðarlegan áhuga á starfinu. „Hún leggur
mikið upp úr því að hafa félagsleg verk-
efni til að þjappa hópnum saman eins
og óvissuferðir. Það má segja að Beta
sé fótboltagúru, hún er dugleg að finna
nýjar æfingar sem auka árangur liðsins.
Hún leggur mikið upp úr að hver og einn
leikmaður bæti sig til þess að liðið í heild
bæti sig líka. Þó að Beta sé frábær liðs-
þjálfari þá er hún einnig frábær einstakl-
ingsþjálfari. Síðan er hún einstakur kar-
akter og skemmtileg og það skiptir miklu
máli,“ segir Margrét.
Eínilegap stelpur í yngri flokkunum
Margrét Lára var aðstoðarþjálfari síð-
asta ár hjá sigursælum 4. flokki kvenna
hjá Val og hún segist hafa mikinn áhuga
á þjálfun. „Mér fannst rosalega gaman
að þjálfa stelpurnar í 4. flokki á síðasta
tímabili. Þetta eru leikmenn framtíð-
arinnar og ef þær halda rétt á spilunum
þá geta þær náð langt. Maður hefur hins
vegar séð marga leikmenn í yngri flokk-
unum detta út á meistaraflokksaldri. Ég
veit að það eru margar í þessum hópi
sem geta náð langt ef þær hafa metnað
og eru tilbúnar að leggja það á sig sem
til þarf. Þá geta þær allt,“ segir Margrét
sannfærandi.
Uppbygging kvennaknattspyrnu
Að mati Margrétar er mjög vel staðið
að uppbyggingu kvennaknattspyrnu á
fslandi þó að alltaf megi samt gera betur
„Eg er ekki í nokkrum vafa um að íslenska kvenna-
landsliðið á eftir að komast á stórmót fljótlega, “ segir
Margrét Lára Viðarsdóttir.
og að tilkoma allra þessara
knattspyrnuhalla breyti miklu
og að krakkar geti leikið sér
á sparkvöllum allan daginn.
„Að mínu mati er mikið lagt
upp úr góðum þjálfurum og
það skiptir miklu máli. Ég
held að það sé ekki mikið
gert upp á milli kynjanna
í yngri flokkunum. Þegar
stúlkur komast á unglingsárin
er svo margt annað í boði en
fótbolti. Það eru bara ekki
allar sem hafa þann metnað
sem til þarf. Fótbolti verður
lífstíll með aldrinum fyrir
þær sem halda áfram. Þegar ég var yngri
voru kannski fjögur yfirburðalið. í dag er
allt miklu jafnara í yngri flokkunum og
fleiri góð lið. Kvennaknattspyrna er ung
íþrótt og fólk verður að sýna þolinmæði.
Með tilkomu allra þessara góðu
þjálfara sem til eru núna og aukinnar
samkeppni verða einstaklingarnir
betri. Kvennadeildin á eftir að jafnast í
náinni framtíð þar sem margir efnilegir
leikmenn eru að koma upp sem styrkja
liðin. Síðan held ég að fleiri leikmenn
ættu að setja stefnuna á að spila erlendis
í betri deildum,“ segir Margrét þokkalega
sátt með þróun mála.
flllt stærra í sniðum hjá Duisburg
en á Islandi
Margrét er nýflutt til Duisburg og er
ánægð með aðstæður þar. „Við byrj-
uðum í byrjun nóvember að æfa á gervi-
grasi því veturinn kemur í Þýskalandi
eins og á íslandi og því er erfitt að æfa
á grasi yfir háveturinn. Aðalvöllur okkur
er mjög flottur miðað við kvennavelli,
góð og stór stúka og völlurinn með fínu
grasi. Ahorfendur eru án efa miklu fleiri
hérna en heima. Hérna mæta allt að 4000
manns á leik og það er mjög gaman að
hafa þennan fjölda enda fótboltinn gríð-
arlega vel spilaður hérna. Ég held að
munurinn hérna og heima sé mestur sá að
hér eru fleiri afgerandi leikmenn í hverju
liði. Hraðinn er auk þess miklu meiri.
Þó megum við vera stolt af því sem við
erum að gera á íslandi því þar er hugsað
mjög vel um leikmenn. Héma eru þetta
atvinnumenn sem hittast ekki mikið utan
æfinga heldur líta meira á æfingar og
liðið sitt sem vinnu,“ segir Margrét.
íslenska kvennalandsliðið á stórmát
fljótlega
Margrét er ekki í nokkrum vafa um að
íslenska kvennalandsliðið eigi eftir að
komast fljótlega á stórmót þar sem marg-
ir góðir leikmenn koma brátt upp sem
auki breiddina og samkeppni um stöður.
Liðið þurfi að hafa góðan þjálfara sem
stilli saman liðið og stuðli að góðum liðs-
anda. „Ef við lítum á frábæran árangur
U21 árs landsliðsins í sumar þá áttum við
að komast í úrslitaleik í sterkasta móti í
okkar árgangi. Þetta er framtíðin og hún
er mjög björt,“ segir Margrét brosandi.
Markið sett hátt
Marki fagnað með nýju félögunwn í
Duisburg.
„Ég setti mér frá upphafi alltaf það mark-
mið að komast í meistaraflokk og lands-
liðin. Síðan þegar ég hafði náð þeim
markmiðum fór ég að hugsa um atvinnu-
mennsku og stórmót með landsliðinu,“
segir Margrét yfirveguð. Aðspurð hvar
hún sjái sig að 5-10 árum liðnum segir
hún að erfitt sé um slíkt að spá en von-
andi verði hún þá hjá frábæru liði í fót-
bolta. „Ég verð þá vonandi búin að fara á
eitt til tvö stórmót með landsliðinu, búin
að mennta mig sem íþróttafræðingur og
íþróttasálfræðingur. Einnig vonast ég
til að eiga góða vini og frábæran mann
sem styður mig í einu og öllu,“ segir hún
dreymin á svip og brosir sínu blíðasta.
22
Valsblaðið 2006