Valsblaðið - 01.05.2006, Side 24

Valsblaðið - 01.05.2006, Side 24
gotthiámeistar a Skýrsla knaltspyrnudelldar áriö 2006 Stjórn knattspymudeildar Vals starfsárið 2006 var þannig skipuð: E. Börkur Edvardsson,formaður Jón Grétar Jónsson, varaformaður Anthony Karl Gregory, ritari Bragi G. Bragason, meðstjórnandi Otthar Edvardsson, form. meistarafl.ráðs Guðjón Olafur Jónsson, meðstjórnandi Kjartan Georg Gunnarsson, meðstj. Björn Guðbjömsson, meðstjórnandi Eva Halldórsdóttir og Erla Sigurbjarts- dóttir,fulltrúar kvennaráðs Jón Hösku Idsson ,ybr/«. unglingaráðs Saf starfi unglingaráðs spyrnudeildar Vals 2005-2006 Valsstelpurnar í meistaraflokki lilaupa sigurhring með Islandsmeistarahikariim. Þjálfarar Á liðnu starfsári störfuðu sextán þjálfarar við ellefu flokka yngri iðkenda. Óhætt er að segja að mikil breyting hafi orðið í röðum þjálfara félagsins. Við ráðningu þjálfara hefur verið lögð áhersla á að fá vel menntaða og reynda þjálfara til starfa hjá félaginu og má fullyrða að vel hafi til tekist. í nokkrum tilvika hafði félagið fmmkvæði að breytingu á mönnun flokka en í fleiri tilvikum hættu þjálfarar störfum að eigin ósk. Gerður var skrif- legur samningur við alla aðalþjálfara til tveggja ára frá 1. október 2005 að telja. Helstu breytingar á mönnun flokka í byrjun starfsársins vora eftirfarandi: Garðar Smári Gunnarsson tók við 3. flokki karla af Guðmundi Brynjólfssyni; Þorsteinn Mar Gunnlaugsson tók við 4. flokki karla af Þór Hinrikssyni og Elvari Má Svanssyni. Þá tók Agnar Kristinsson við 5. og 6. flokki karla af Gylfa Sigurðssyni og þeim Hróari Jónssyni og Skúla Sigurðssyni. 7. flokk þjálfuðu Rakel Logadóttir og Baldur Þórólfsson, en þau ásamt Dóru Stefánsdóttur tóku við af Benedikt Bóasi Hinrikssyni á miðju ári 2005. Stofnaður var 8. flokkur, blandaður báðum kynjum og þjálfaði Rakel Logadóttir þann flokk. 3. og 4. flokk kvenna þjálfuðu þeir Bjöm Sigurbjömsson og Freyr Alexandersson. Naut Freyr Kampakátar stúlkur í4.flokki með íslandsmeistarabik- arinn. Frá vinstri: Bryndís, Guðrún Elín, Kristbjörg, Fiona, Sœunn Sif, Thelma Ó, Gerður, Sigurlaug og Heiða Dröfn. aðstoðar Margrétar Lára Viðarsdóttur. 5. flokk þjálfaði Theodór Sveinjónsson með aðstoð Leu Sifjar Valsdóttur, en hún var einnig aðalþjálfari 6. flokks. Aðstoðarþjálfari í 6. flokki kvenna á starfsárinu var Signý Heiða Guðnadóttir. Rakel Adolphsdóttir þjálfaði 7. flokk stúlkna með aðstoð Kristínar Jónsdóttur, en Rakel lét af störfum á miðju sumri og tók Kristín þá ein við flokknum. Garðar Smári Gunnarsson lætur af starfi þjálf- ara 3. flokks og það gerir einnig Baldur Þórólfsson, sem þjálfað hefur 7. flokk. Unglingaráð og knattspyrnudeild Vals þakkar þeim þjálfuram sem létu af störfum á tímabilinu fyrir sam- starfið á liðnum áram og óskar öllum núver- andi þjálfuram velfam- aðar í krefjandi starfi. Yflrþjálfarar Á liðnu starfsári störf- uðu tveir yfirþjálfarar fyrir 2. flokk og alla yngri flokka félags- 24 Valsblaðið 2006

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.