Valsblaðið - 01.05.2006, Page 28
Meistaraflokkur kvéiwa íknattspyrnu 2006. Efri födfrá vinstri: Theoclór Sveinjónsson adstodarþjálfari, Asta Arnaáóttir, Asthiláur M. Hjaltaáóttir,
Margrét Lára Vidarsáóttir, Málfríóur E. Sigurdaráóttir, María Rós Arngríinsáóttir, Ragnheiöur Jónsdóttir liðsstjóri. Miðröðfrá vinstri: Otthar
Edvarássón framkvœmdarstjóri, Elísabei Gunnarsáóttir þjálfari, Erla Sigurhjartsáóttir mflráði, Hlíf Hauksáóttir, Guðnín María Þorhjörns-
áóttir, Margrét Magnúsdóttir, Lilja Gunnarsdóttir, Pála Marie Einarsáóttir, Sara Sigurlásáóttir, Ólafur Pétursson markmannsþjálfari, JÓliannes
Marteinsson sjúkraþjáljari. Neðri röð frá vinstri: Guðný Óðinsáóttir, Dóra María Lárusáóttir, Guðhjörg Gunnarsáóttir. Kalrín Jónsáóttir fyrirliði,
Ása Dögg Aðalsteinsáóttir, Thehna Ýr Gylfaáóttir, Anárea Ýr Gústafsáóttir. Á mynáina vantar: Rakel Logaáóttur, Hallheru Guðnýju Gísladóttur.
Rut Bjarnadóttur, Laufeyju Jóhannsáóttur. Asbjörn Þór
Skýpsla vegna meistaraflokks
kvenna tímabiliö 2006
Leikmannamál
Eftir tímabilið 2005 urðu Valsstúlk-
ur fyrir blóðtöku þegar þrír leikmenn
ákváðu að leggja skóna á hilluna, þær Iris
Andrésdóttir (fyrirliði), Laufey Olafs-
dóttir og Katrín Heiða Jónsdóttir. Lands-
liðskonan Dóra Stefánsdóttir yfirgaf svo
herbúðir liðsins og hélt til Svíþjóðar, þar
sem hún spilar nú með Malmö FF. Einn-
ig lagði Vilborg Guðlaugsdóttir skóna á
hilluna.
En það er ekki í eðli okkar að gefast
upp. Hafist var handa við að styrkja
hópinn fyrir komandi átök. Stelpurnar
fengu til liðs við sig landsliðskonuna
Katrínu Jónsdóttur, sem kom frá Noregi
þar sem hún hafði spilað fótbolta í efstu
deild. Katrín hafði áður spilað með lið-
inu, sumarið 2004. Einnig komu þær
Hallbera Guðný Gísladóttir og Thelma
Ýr Gylfadóttir frá ÍA. Stelpurnar fengu
og góðan liðsstyrk úr Kópavoginum en
markvörðurinn Ása Dögg Aðalsteinsdóttir
gekk til liðsins frá HK.
Nokkrir erlendir leikmenn komu við
sögu hjá meistaraflokki kvenna í sumar.
Bandaríkjamaðurinn Tatiana Mathelier
kom til liðs við liðið í upphafi sumars,
en meiddist illa og spilaði ekki nema
tvo leiki með liðinu. Einnig Þjóðverjinn
Viola Odebrecth, en hún var m.a. í lands-
liðshópi Þjóðverja sem varð heimsmeist-
ari. Af persónulegum ástæðum þurfti hún
þó að snúa til síns heima fyrr en búist var
við og spilaði ekki nema fimm leiki með
liðinu. Það kom þó ekki að sök því um
leið og Viola yfirgaf Hlíðarenda kom til
liðs við félagið fyrirliði skoska landsliðs-
ins, Julie Fleeting. Julie spilaði tvo leiki
í Landsbankadeildinni og skoraði í þeim
fjögur mörk. Einnig spilaði hún með lið-
inu gegn KR í átta liða úrslitum bikars-
ins. Enn og aftur var gæfan ekki með í
för þegar kom að erlendum leikmönnum
og yfirgaf Julie liðið fyrr en vonir stóðu
til.
■i .
'A'
s
é
Á \ 1 ' J
JBL
" /
:f jk''
y&gA
Innbyrðis œflngaleikur meðan beðið var eftir Islandsineistarabikarnum.
Þjálfarateymi
Þjálfari liðsins var sem fyrr Elísabet
Gunnarsdóttir en hún skrifaði nýver-
ið undir nýjan þriggja ára samning við
félagið. Aðstoðarþjálfari meistaraflokks
í sumar var Theodór Sveinjónsson sem
jafnframt sá um þjálfun 2. flokks félags-
ins. Sem fyrr var markmannsþjálfari liðs-
ins Ólafur Pétursson.
Æfingar liðsins fóru fram í Egilshöll
síðastliðinn vetur auk þess sem stelp-
urnar æfðu þrek og styrk í Sporthúsinu
í Kópavogi. í sumar fóru æfingar liðsins
fram á gamla aðalvellinum á Hlíðarenda.
Umgjörð
Kvennaráð skipuðu í sumar þau Erla Sig-
urbjartsdóttir, Eva Halldórsdóttir, Ásta
Indriðadóttir, Kjartan Orri Sigurðsson og
Ragnar Vignir. Mæddi töluvert á kvenna-
ráði þar sem heimaleikir liðs-
ins fóru fram á Valbjarnarvelli
vegna framkvæmdanna að
Hlíðarenda.
Árangur í mótum
Tímabilið hófst með þátttöku
í deildarbikarkeppni KSI.
Stelpurnar léku til úrslita við
Breiðablik og tapaðist sá leik-
ur 1-2. Stelpurnar tóku einn-
ig þátt í Reykjavíkurmótinu
og þurfti að gera sér 2. sætið
að góðu. I maímánuði tapaði
liðið í Meistarakeppni KSI
gegn Breiðabliki, 5-1.
íslandsmótið hófst í maí.
28
Valsblaðið 2006