Valsblaðið - 01.05.2006, Side 30
Meistaraflokkur karla
Gístason, Hálfdán Gísl
Sœvarsson, Pálmi Rafn
son, Friðrik E. Jónssoi
björn Hreiðarsson fyri. li,
í knattspyrnu 2006. Efsta\röð frá vinstri: Atli
isson, Willum Þór Þórssbn þjálfari. Miðröð frá
Pálmason, Kristinn Gui mundsson, Baldur
sjúkraþjálfari, Halldór
iði, Agúst Garðarsson,
'yþórsson liðsstjóri.
Kristinn Hafliðasson
Þórarinsson, Andri Valur ívarsson, Garðar Jóhannsson, Baldur Þórólfsson, Steinþór
■ Þór Hinriksson aðstoðarþjálfari, Ótthar Edvardsson framkvœmdastjóri, Birkir Már
Sigurður Sigurðsson, Valur Fannar Gíslason, Barry Smitli, Matthías Guömunds-
röð frá vinstri: Þorvaldur Makan, Árni Ingi Pjetursson, Kjartan Sturlusson, Sigur-
Kató Hauksson, Guðmundur Benediktsson, Björgvin Björgvinsson stuðningsmaður.
var aðstoðarþjálfari, Bjarni Sigurðs-
son sá um þjálfun markvarða og Hall-
dór Eyþórsson var sem fyrr liðsstjóri og
Friðrik Ellertsson sjúkraþjálfari.
Nefndir og ráð
Meistaraflokksráð karla var skipað þeim
Otthari Edvardssyni sem var formaður
og Braga Bragasyni. Heimaleikjanefnd
var skipuð þeim Þurý Björk Björgvins-
dóttir, Helgu Eiríksdóttir, Skúla Edv-
ardssyni og síðan komu fjölmargir aðrir
að heimaleikjum.
Þátttaka í mótum
Árangur liðsins í sumar var mjög góður
og verður að skoðast í ljósi aðstöðuleysis
og að liðið hafði engan fastan samastað
og spilaði heimaleiki á útivelli sem var
Laugardalsvöllur.
Liðið lenti í 5. sæti síns riðils í deild-
arbikarnum, á Reykjavíkurmótinu lenti
liðið í 2. sæti síns riðils en í raun vann
liðið riðilinn en tapaði á móti Fram
vegna kæru vegna ólöglegs leikmanns. Á
íslandsmótinu endaði liði í 3. sæti og var
afar óheppið að taka ekki annað sætið en
það tapaðist á síðustu sekúndu í síðasta
leik á móti KR. Ekki tókst að verja bik-
armeistaratitilinn og féll liðið úr keppni
eftir að hafa tapað á móti Víkingum.
í ár tók Valur þátt í Evrópukeppni karla
í knattspyrnu í fyrsta skipti í langan tíma.
Mótherjar Vals voru ekki að lakari tag-
inu en við drógumst gegn einu besta liði
Norðurlanda, Bröndby. Fyrri leikurinn
var ytra og endaði 3-1. Ljóst var að okkar
menn áttu talsverða möguleika á að kom-
ast áfram og því mikil spenna fyrir síðari
leiknum. Leiknum var sjónvarpað beint
til Danmerkur og endaði 0-0 og þar með
ljóst að okkar þátttöku var lokið.
Ljóst er að leikmenn Vals vöktu mikla
athygli annarra liða á Norðurlöndum
því í kjölfarið á síðari leiknum tóku fyr-
irspurnir að berast Val vegna nokkurra
leikmanna liðsins. Stjóm knattspyrnu-
deildar tók vel ígrundaða ákvörðun um
að selja tvo af leikmönnum liðsins til
Svíþjóðar vegna þeirra ástæðu að við-
unandi tilboð barst í þá, þ.e. Ara Frey
Skúlason og Garðar Gunnlaugsson. í
kjölfarið gerði stjórn knattspyrnudeildar
tilboð í Garðar Jóhannsson hjá KR sem
var tekið. Ekki hafði áhugi erlendra liða
minnkað á leikmönnum Vals þrátt fyrir
að Ari og Garðar hefðu verið seldir því
tilboð barst í Garðar Jóhannsson frá
Noregi sem var tekið. Kom í ljós að ekki
var unnt að skrá leikmanninn hjá norska
knattspymusambandinu þar sem hann
hafði spilað með tveimur félagsliðum í
sama mánuði. Norska liðið og Valur tóku
þá ákvörðun að láta samninginn standa
fram í janúar og í millitíðinni að leita
liðsinnis KSÍ og láta reyna á hvort ekki
fengist undanþága fyrir leikmanninn.
Valur eignaðist A-landsliðsmann á
árinu þegar Matthías Guðmundsson var
valinn í hópinn. Pálmi Rafn, Ari Freyr og
Birkir Már voru valdir í U21 landsliðið.
Nú liggur fyrir að Matthías
Guðmundsson hefur yfirgefið Val og
skipt yfiríFH.
Fjármál
Aldrei fyrr í sögu Vals hefur velta deild-
arinnar verið jafn há og núna og fer
yfir 100 milljónir króna. Kostnaður
hefur aukist jafnt og þétt og þá aðallega
vegna þjálfara, leikmanna og eins hefur
aðstöðuleysið kostað deildina drjúga fjár-
hæð. Jafnvægi var í rekstri deildarinnar.
2. flokkur karla
Guðmundur Brynjólfsson þjálfaði 2.
30
Valsblaðið 2006