Valsblaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 57

Valsblaðið - 01.05.2006, Blaðsíða 57
Eftir Sævald Bjarnason og munum breyta. Það er sannfæring mín að með framkvæmdum að Hlíðarenda skapist aðstaða sem er meiri og betri en önnur félög geta boðið. Þetta verður gríðarleg lyftistöng fyrir félagið sem á eftir að nýtast vel í öllum íþróttagreinum, þ.m.t. körfunni. Áttir þú einhverjar fyrirmyndir sem leikmaður? Þegar ég byrjaði í körfubolta sem von- glaður snáði var nokkuð ólík staða varð- andi aðgengi og umfjöllun um íþróttir. Til dæmis var ekki sýnt frá NBA. Helsta leiðin til að tileinka sér þau vísindi var að fara á Ameríska bókasafnið og fá lánuð þau örfáu rit sem komu þangað um íþróttir. Um þau rit var slegist. Einnig hlustuðum við á leiki í Kanaútvarpinu. En síðar, þegar útsendingar hófust, fékk ég dálæti á Magic Johnson, Isiah Tomas, Dr. J. og fleiri snillingum. Hér heima leit ég mikið upp til Jóns Sigurðssonar og eðlilega uppeldisföður míns, Torfa Magnússonar, enda báðir snillingar. Hvað er það minnistæðasta sem m upplifðir sem leikmaður eða ijálfari hjá Val? Ég á afar margar góðar og skemmtilegar minningar frá Val. Eg held að tvennt sé mikilvægast í því sambandi: í fyrsta lagi hef ég kynnst mörgu afar góðu fólki og myndað sterk vináttutengsl. í öðru lagi er það sannfæring mín að íþróttir og sá agi og drifkraftur sem ríkir hjá metnaðar- fullu félagi sé sérstaklega hollt vegamesti og gott uppeldi fyrir alla sem nýtist vel síðar í lífinu. Af mörgum minnisstæð- um atburðum held ég að úrslitakeppnin 1991, þegar við töpuðum fyrir Keflavík 3-2 í úrslitum Islandsmótsins, sé ofarlega í huga. Við höfðum lagt Njarðvík 2-1 í undanúrslitum, en Njarðvík átti að vera með besta liðið. Við komumst svo 2-1 yfir gegn Keflavík en náðum ekki að klára dæmið, því miður. I þeim leikjum var meðal annars sett áhorfendamet á leik í Valsheimilinu. Met sem verður ekki slegið í því húsi, enda húsið farið. Margar skemmtilegar sögur Svali segir að til séu óendanlega margar skemmtilegar sögur sem tengjast íþrótta- ferlinum en hann sé ekki rétti maðurinn til að rifja slíkt upp. Hann man mjög skemmtilegri sögu sem tengist tungu- málaerfiðleikum. „Til okkar kom rúss- neskur þjálfari í tvö tímabil í kringum 1990, Vladimir Obukov, afar fær þjálfari sem hafði m.a. þjálfað sovéska landslið- ið í heimsmeistarakeppni 1986. Það voru hins vegar talsverðir tungumálaerfiðleik- ar, hann altalandi á rússnesku en enginn okkur talandi á þá tungu. Önnur tungu- mál kunni hann ekki. Hann var þó áhuga- samur um að læra ensku en námið gekk frekar seint. Þannig ruglaði hann iðulega saman ensku orðunum fast-break (hrað- upphlaupi) og breakfast (morgunverði) og hvatti okkur ítrekað til að borða morg- unverð í miðjum leikjum í stað þess að fara í hraðupphlaup. Besta enskukennsl- an fyrir okkar mann var þegar við gáfum honum myndbandstæki. Þá lærði hann heitin þar mjög fljótt, til dæmis play, stop, pause og fast-forward. Þessi hug- tök nýtti hann vel og var svo komið að hann gat útskýrt nánast alla hluti leiksins og verið með heimspekilegar vangavelt- ur með þessum orðum. Þetta er kannski eitthvað sem stjómvöld ættu nú að skoða fyrir það ágæta fólk sem er að flytja til landsins og á í erfiðleikum með málið, gefa öllum myndbandstæki. Hvernig finnst þér íslenskur körfubolti nú um stundir? Það hafa orðið eðlilegar framfarir en ekki nein bylting. Hins vegar hefur orðið sú neikvæða þróun í mínum huga, að það er alltof mikið um erlenda leikmenn. Þetta er ekki aðeins í körfunni. Þetta er ekki bara illa ígrundað heldur heimskulegt. Það þarf ekki spakan aðila til að sjá að þetta skilar engu til framtíðar. Við fáum erlenda leikmenn, sem margir hverjir eru í besta falli meðalmenn að íþróttagetu, þannig að af þeim má ekkert læra. Vand- inn er að þessir sömu miðlungsleikmenn taka mínútur frá ungum og oft bráðefni- legum leikmönnum. Þetta er slæm þróun og ekki íþróttum til framdráttar. Flest íþróttafélög í hópíþróttum eru komin í eltingarleik, þar sem reglur eru óljós- ar, andstæðingurinn falinn og enginn veit hvert markið er. Hér verða menn að staldra við og hugsa dæmið frá byrjun. Hvenær förstu aö þjálfa oy hvers vegna? Ég byrjaði að þjálfa mjög snemma. Ég var sennilega 16 ára þegar ég tók að mér tvo yngri flokka og þjálfaði síðan alltaf yngri flokka samhliða því að spila og stunda nám. Mér fannst það afar skemmtilegt og gefandi. Ég var með marga góða flokka sem unnu alla titla. En þar sem ég er bæði verulega manískur og mikill keppnismaður fékk ég mik- inn áhuga á þjálfun og drakk í mig allan fróðleik, námskeið, bækur og pæling- ar. Svo tók ég við meistaraflokki þegar ég var 25 ára, sem spilandi þjálfari. Ég sé núna að það var of snemmt, en því verður ekki breytt. Ég fór svo meira út í þjálfun vegna sem að lokum gerðu það að verkum að ég þurfti að hætta að spila miklu fyrr en ég hafði ætlað. Orðatil- tækið heilbrigð sál í skemmdum líkama á hér ágætlega við, en sálin er mjög heil eftir gott uppeldi hjá Val. Hvernig er draumakörfuboltalið Vals? Flott spuming, það hafa margir mjög góðir leikmenn spilað í rauða búningn- um. Ég myndi hafa Pétur Guðmundsson og Magnús Matthíasson sem miðherja, einnig með þeim undrabamið Símon Ólafsson. Þá sé ég fyrir mér Torfa Magn- ússon, sem hélt alltaf að hann væri mið- herji, sem framherja og með honum Kristján Ágústsson. Þá er baklínan vel mönnuð. Sem bakverði myndi ég velja Tómas Holton, Ragnar Þór Jónsson (ómeiddan) og Þóri Magnússon. I liðinu yrðu tveir erlendir leikmenn sem lelk- ið hafa með okkur og skilið mikið eftir, snillingurinn Franc Booker og varn- armaðurinn Brad Miley, sem lék með Val 1980. Hann kom frá Indiana State háskól- anum og lék þar m.a. með Larry Bird og ívari Webster. Ég mundi svo þjálfa liðið og spila með. Auðvelt verk. Þetta lið yrði með öllu ósigrandi og limaburður fegurri en áður hefur sést. Hefup þú einhver ráð eöa skilaboð til ungra og efnilegra Valsmanna? Ráð mitt er einfalt: Haldið áfram að leggja metnað í það sem þið gerið, í körfubolta eða öðru því sem þið takið ykkur fyrir hendur. Það mun skila sér margfalt til baka. Þá hvet ég allt ungt fólk til að vera duglegt að æfa körfubolta og borða mikið af tröllamjöli til að öðl- ast styrk og þol. Ég er sannfærður að það er ekki bara björt framtíð hjá körfu- knattleiksdeild Vals, heldur skellibjört. Að lokum vil ég gera orð séra Friðriks að mínum: Látið aldrei kappið bera feg- urðina ofurliði. Valsblaðið 2006 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.