Valsblaðið - 01.05.2006, Page 62

Valsblaðið - 01.05.2006, Page 62
p apupi tvropuKeppn aratta i deildinni I Skýpsla handknattleiksdeildap Vals ápið 2006 Meistaraflokkur kvenna í handknatt- leik 2006-2007. Efsla röð frá vinstri: Hörður Cunnarsson, varaformað- ur aðalstjórnar, Stefán Karlsson, formaður handknattleiksdeildar, Agúst Jóhannsson þjálfari, Katrín Andrésdóttir, Lilja B. Hauksdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Hafrún Kristjánsdóttir, Karl Guðni Erlings- son aðstoðarþjálfari, Guðlaugur Ottesen Karlsson stjórnarmaður hkd. og Gunnar Þór Möller varaformað- ur hkd. Miðröð: Grétá Þórsdóttir Björnsson, Guðrún Drífa Hólmgeirs- dóttir, Sigurlaug Rúna Rúnarsdóttir, Soffía Rut Gísladóttir, Agústa Edda Björnsdóttir, Drífa Skúladóttir. Fremstar: Pavla Skavronkova og Jolanta Slapekiene. A myndina vantar: Örnu Grímsdóttur, Brynju Steinsen, Rebekku Skúladóttur, Önnu Guðmundsdóttur, Hildi Sif Pálmars- dóttur og Kristínu Collins. Fyrir tímabilið 2005-2006 voru töluverð- ar breytingar á stjóm handknattleiks- deildar. Haraldur Daði Ragnarsson lét af formennsku og hélt til náms erlendis, auk þess sem Eiríkur Sæmundsson og Snorri Páll Jónsson létu af stjómarstörfum. Allir höfðu þeir unnið gott starf fyrir deildina og er vonandi að við fáum að njóta krafta þeirra í náinni framtíð. Maður kemur í manns stað og öflug stjóm var mynduð fyrir tímabilið, en hana skipa: Stjórn handknattsleiksdeildar Jóhann PÓTaúnsson, formaður Stefán Karlsson, varaformaður Gunnar Möller, formaður meistaraflokksráðs Bjarni Gunnarsson, formaður fjárhagsráðs Guðlaugur Ottesen, formaður heimaleikjaráðs Jóhann Birgisson, meðstjórnandi Tímabilið 2005-2006 varkrefjandi fyrir margra hluta sakir. Þar sem framkvæmdir voru hafnar á Hlíðarenda æfðu og kepptu elstu flokkamir í Laugardalshöll en yngri flokkamir voru dreifðir í íþrótta- húsum grunnskóla. Það er erfitt að hafa ekki samastað eins og Valsheimilið, en óhætt er að segja að deildin hafi komist vel frá þessu hlutskipti. Laugardalshöllin er orðin okkar heimili að heiman, en þar hefur okkur verið vel tekið og náðst hefur að skapa gott andrúmsloft. Mikið var lagt upp úr því að hafa umgjörðina góða og það skilaði sér í því að Höllin var kosin besti heimavöllurinn af net- miðlinum sport.is þetta tímabil. Starfið í kringum heimaleikina hefur þurft að efla til mikilla muna og eiga Guðlaugur og félagar í heimaleikjaráði mikinn heiður skilinn fyrir þá ótrúlegu vinnu sem þeir hafa innt af hendi við að gera Höllina að því sem hún er núna. Við búum vel að því að eiga öfluga menn innan félagsins sem taka daginn frá þegar heimaleikur er og leggja á sig þrotlausa vinnu við að gera allt tilbúið fyrir hvern leik. Þessum mönnum verður aldrei þakkað nóg fyrir framlag þeirra til starfsins. Yfinþjálfapi A síðasta tímabili var starfandi yfirþjálf- ari í hálfu starfi hjá deildinni til þess að mæta þeirri auknu vinnu við skipulag æfinga á eins mörgum stöðum og raun ber vitni. Sigríður Unnur Jónsdóttir gegndi starfinu til áramóta og þá tók Sig- urlaug Rúnarsdóttir við og hélt áfram þar sem frá var horfið. Báðar skiluðu þær frábæru starfi og í raun nauðsynlegu í ljósi aðstæðna. Þjálfarar og aðstandend- ur fá einnig hrós fyrir þá þolinmæði og þann skilning sem þeir hafa sýnt aðstæð- um okkar, en við þurfum öll að minna okkur reglulega á að uppskeran er ekki langt undan, glæsilegasta æfinga- og keppnisaðstaða landsins. Sjálfboðastarf Sú jákvæða þróun hefur átt sér stað í handknattleiksdeild undanfarin ár að sífellt fjölgar þeim sem starfa í kringum deildina og gerir það starfið bæði auð- veldara og skemmtilegra. Fyrrverandi 62 Valsblaðið 2006

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.