Valsblaðið - 01.05.2006, Síða 62
p apupi tvropuKeppn
aratta i deildinni
I
Skýpsla handknattleiksdeildap Vals ápið 2006
Meistaraflokkur kvenna í handknatt-
leik 2006-2007. Efsla röð frá vinstri:
Hörður Cunnarsson, varaformað-
ur aðalstjórnar, Stefán Karlsson,
formaður handknattleiksdeildar,
Agúst Jóhannsson þjálfari, Katrín
Andrésdóttir, Lilja B. Hauksdóttir,
Hildigunnur Einarsdóttir, Hafrún
Kristjánsdóttir, Karl Guðni Erlings-
son aðstoðarþjálfari, Guðlaugur
Ottesen Karlsson stjórnarmaður hkd.
og Gunnar Þór Möller varaformað-
ur hkd. Miðröð: Grétá Þórsdóttir
Björnsson, Guðrún Drífa Hólmgeirs-
dóttir, Sigurlaug Rúna Rúnarsdóttir,
Soffía Rut Gísladóttir, Agústa Edda
Björnsdóttir, Drífa Skúladóttir.
Fremstar: Pavla Skavronkova og
Jolanta Slapekiene. A myndina
vantar: Örnu Grímsdóttur, Brynju
Steinsen, Rebekku Skúladóttur, Önnu
Guðmundsdóttur, Hildi Sif Pálmars-
dóttur og Kristínu Collins.
Fyrir tímabilið 2005-2006 voru töluverð-
ar breytingar á stjóm handknattleiks-
deildar. Haraldur Daði Ragnarsson lét af
formennsku og hélt til náms erlendis, auk
þess sem Eiríkur Sæmundsson og Snorri
Páll Jónsson létu af stjómarstörfum. Allir
höfðu þeir unnið gott starf fyrir deildina
og er vonandi að við fáum að njóta krafta
þeirra í náinni framtíð. Maður kemur í
manns stað og öflug stjóm var mynduð
fyrir tímabilið, en hana skipa:
Stjórn handknattsleiksdeildar
Jóhann PÓTaúnsson, formaður
Stefán Karlsson, varaformaður
Gunnar Möller,
formaður meistaraflokksráðs
Bjarni Gunnarsson,
formaður fjárhagsráðs
Guðlaugur Ottesen,
formaður heimaleikjaráðs
Jóhann Birgisson, meðstjórnandi
Tímabilið 2005-2006 varkrefjandi fyrir
margra hluta sakir. Þar sem framkvæmdir
voru hafnar á Hlíðarenda æfðu og kepptu
elstu flokkamir í Laugardalshöll en
yngri flokkamir voru dreifðir í íþrótta-
húsum grunnskóla. Það er erfitt að hafa
ekki samastað eins og Valsheimilið, en
óhætt er að segja að deildin hafi komist
vel frá þessu hlutskipti. Laugardalshöllin
er orðin okkar heimili að heiman, en
þar hefur okkur verið vel tekið og náðst
hefur að skapa gott andrúmsloft. Mikið
var lagt upp úr því að hafa umgjörðina
góða og það skilaði sér í því að Höllin
var kosin besti heimavöllurinn af net-
miðlinum sport.is þetta tímabil. Starfið í
kringum heimaleikina hefur þurft að efla
til mikilla muna og eiga Guðlaugur og
félagar í heimaleikjaráði mikinn heiður
skilinn fyrir þá ótrúlegu vinnu sem þeir
hafa innt af hendi við að gera Höllina að
því sem hún er núna. Við búum vel að
því að eiga öfluga menn innan félagsins
sem taka daginn frá þegar heimaleikur
er og leggja á sig þrotlausa vinnu við að
gera allt tilbúið fyrir hvern leik. Þessum
mönnum verður aldrei þakkað nóg fyrir
framlag þeirra til starfsins.
Yfinþjálfapi
A síðasta tímabili var starfandi yfirþjálf-
ari í hálfu starfi hjá deildinni til þess að
mæta þeirri auknu vinnu við skipulag
æfinga á eins mörgum stöðum og raun
ber vitni. Sigríður Unnur Jónsdóttir
gegndi starfinu til áramóta og þá tók Sig-
urlaug Rúnarsdóttir við og hélt áfram þar
sem frá var horfið. Báðar skiluðu þær
frábæru starfi og í raun nauðsynlegu í
ljósi aðstæðna. Þjálfarar og aðstandend-
ur fá einnig hrós fyrir þá þolinmæði og
þann skilning sem þeir hafa sýnt aðstæð-
um okkar, en við þurfum öll að minna
okkur reglulega á að uppskeran er ekki
langt undan, glæsilegasta æfinga- og
keppnisaðstaða landsins.
Sjálfboðastarf
Sú jákvæða þróun hefur átt sér stað í
handknattleiksdeild undanfarin ár að
sífellt fjölgar þeim sem starfa í kringum
deildina og gerir það starfið bæði auð-
veldara og skemmtilegra. Fyrrverandi
62
Valsblaðið 2006